155. löggjafarþing — 8. fundur,  19. sept. 2024.

bókun 35 við EES-samninginn.

[10:52]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég skal svara fyrri spurningunni mjög skýrt. Eins og margoft hefur komið fram og ég veit að hv. þingmaður veit, það kemur skýrt fram í frumvarpinu, í greinargerðinni og í áliti Þorgeirs Örlygssonar sem nefndin hefur fengið og í öðrum greinum sem hafa verið skrifaðar, þá gengur frumvarpið út á það að þegar íslensk lög sem hafa farið í gegnum Alþingi og fengið þinglega meðferð og önnur íslensk lög sem hafa fengið þinglega meðferð og eru orðin lög á Alþingi rekast á, þá gengur þetta út á að standa við 30 ára gamla ákvörðun um að í slíkri túlkun sé litið til þeirra þjóðréttarlegu skuldbindinga, sem þýðir að þau íslensku lög sem koma þaðan eigi að ráða nema annað sé sérstaklega tekið fram. (BergÓ: …) Varðandi þingsályktunina um að það þurfi að spyrja þingið og vera þinglegur meiri hluti fyrir því ef leggja á streng, þá stendur það að sjálfsögðu vegna þess að það var gert og var auðvitað hluti af lausn vegna pólitískra ástæðna í þinginu. Það er kannski ágætt að benda á að það var allan tímann alveg skýrt, óháð þingsályktuninni, (Forseti hringir.) að það kæmi enginn hér frá Evrópusambandinu eða Evrópulandi og myndi stinga Íslandi í samband og gera það að hluta af evrópskum markaði, alveg óháð þingsályktuninni. (Forseti hringir.) En það stendur og það verður ekki hægt að koma hingað og leggja kapal, enda er það ekki hluti af þriðja orkupakkanum og var aldrei.