155. löggjafarþing — 8. fundur,  19. sept. 2024.

staða sérskóla fyrir fötluð börn.

[10:57]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svarið. Ég ætla hins vegar að ítreka beiðni mína um mat hans á því hvað valdi þeirri stöðu sem upp er komin. Hvers vegna stöndum við frammi fyrir þessum vanda núna með svona áberandi hætti? Það er einhver skörp fjölgun í umsóknum í sérskólana sem við höfum ekki fullar skýringar á og ég tel að hæstv. ráðherra hljóti að hafa upplýsingar sem ég hef ekki um það. Það er nefnilega ekki erfitt að reikna dæmið til enda. Ég vil nú nefna það, fyrst við erum hér að ræða velferðarmálin, að ég er alveg sammála því sem haft hefur verið eftir hæstv. fjármálaráðherra t.d. sem hefur sagt að velferð sé ekki gefin. Það er alveg hárrétt og ég held að við hljótum öll að sjá að ásakanir um að við séum hér að belgja út velferðarkerfi þegar við gerum þá einföldu kröfu að hér sé börnum veitt lögbundin þjónusta á sviði menntunar, lögbundin heilbrigðisþjónusta — þá erum við að biðja um afskaplega málefnalega hluti. (Forseti hringir.) Ég vil því athuga hvort hæstv. ráðherra sé sammála því að þetta sé til marks um það að við séum að belgja út kerfi (Forseti hringir.) og hvort umræður um ábata í kerfi hafi ekki beint að gera með þær aðkallandi myndir sem við sjáum um skort t.d. á NPA-þjónustu sem við sáum í fréttum í gær.

(Forseti (BÁ): Enn minnir forseti á ræðutíma.)