155. löggjafarþing — 8. fundur,  19. sept. 2024.

vísitala neysluverðs og verðbólga.

[11:00]
Horfa

Daði Már Kristófersson (V):

Forseti. Ég vil beina spurningu til hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra. Af umræðum í þessum sal mætti ætla að verðbólga sem fyrirbæri væri breytingar á vísitölu neysluverðs en ekki það sem hún raunverulega er, rýrnun á verðgildi peninga. Þannig er bæði hv. þingmönnum og hæstv. ráðherrum tíðrætt um alls kyns undirvísitölur vísitölu neysluverðs og breytingar á þeim, eins og þær innihaldi einhvern meiri sannleik en mælingar á vísitölu neysluverðs. Fyrir mér er vísitala neysluverðs hitamælir og það sem við erum að velta fyrir okkur er hvort sjúklingurinn er með hita, hvort hann sé eðlilegur eða óeðlilegur. Það að breyta hitamælinum gerir lítið fyrir heilsu sjúklingsins. Auðvitað væri mögulegt að úthluta öllum íslenskum læknum einfaldlega priki með strikum á þar sem rauður punktur væri við 37° C. Þeir gætu svo mælt íslenska sjúklinga hægri vinstri og komist að því að enginn þeirra þyrfti á nokkurs konar læknismeðferð að halda. Það væri hægt að spara heilbrigðiskerfinu stórfé í að bregðast við alls kyns kvillum sem hrjá þjóðina. Það blasir auðvitað við öllum að þetta er ekki góð hugmynd vegna þess að þarna er einfaldlega verið að fela vandamálin.

Mig langar að beina spurningu til hæstv. ráðherra um það hvort hann telji að gera þurfi breytingar á vísitölu neysluverðs, t.d. þannig að húsnæðisliðurinn sé felldur úr henni, eins tamt og þingmönnum er að ræða um verðbólgu án húsnæðisliðarins.