vísitala neysluverðs og verðbólga.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að taka þessa myndlíkingu um heilbrigðiskerfið þar sem ég sem dýralæknir gæti alveg farið í að dýpka þá umræðu og er sammála honum um að það er ekki góð hugmynd að breyta hitamælinum eða kvarðanum á hitamælinum. Það svarar kannski bara spurningunni sem hv. þingmaður endaði á að spyrja.
Við erum með eitthvað sem er samræmd vísitala sem er svolítið eins yfir allt saman. Hún svona kjarnavísitala, eins og hv. þingmaður þekkir auðvitað betur en flestir hér inni, þar sem húsnæðisliðurinn er ekki inni og einhverjir einskiptisliðir. En á þann mælikvarða hefur verðbólga á Íslandi verið að mælast með sambærilegum hætti og á Norðurlöndunum, ef við horfum til 2015, ef ég man var hún 2,5%, þar sem Norðmenn hafa verið í 3,3% en Danmörk og Svíþjóð örlítið neðar.
Það er auðvitað ekki nein hókus-pókus aðferð að kippa einhverju út úr vísitölu og segja að það sé það sem við erum að horfa á þegar við vitum að markaðurinn, sem er að reyna að verðmeta hver áhættan er á húsnæðismarkaði og hvaða viðmið menn setja inn í lánasamninga, myndi þá nota bara eitthvað allt annað. Það er ákveðin neytendavernd fólgin í því að það sé einhver vísitala sem allir geta gengið að.
Vandinn við vísitöluna eins og hún hefur verið reiknuð þangað til núna í sumar var að hún byggði fyrst og fremst á húsnæðismarkaði, sölu, sem aðeins tvö önnur lönd hafa verið með, Svíþjóð og Kanada. Þar hafa þeir hins vegar notað miklu lengri aðdraganda í vísitölunni og dregið úr þeim sveiflum á meðan að á Íslandi var bara tekin punktmæling sem hefur ýkt sveifluna.
Þegar við förum inn í þessa nýju vísitölu í dag eða nýju aðferðafræði Hagstofunnar við að mæla húsnæðiskostnaðinn, þ.e. húsaleigu, þá hef ég áhyggjur af því að það sé akkúrat gert á þeim tíma þar sem við erum ekki enn komin með nægilega (Forseti hringir.) stóran bunka af skráningarskyldum leigusamningum undir, að þar séu bara þær breytingar (Forseti hringir.) sem vissulega urðu m.a. vegna Grindavíkur, sem hafa hækkað þá vísitölu meira. Við skulum líka muna að ef gamla vísitalan (Forseti hringir.) væri í gangi þá væri verðbólgan hærri með húsnæðisliðinn inni.