155. löggjafarþing — 8. fundur,  19. sept. 2024.

vísitala neysluverðs og verðbólga.

[11:05]
Horfa

Daði Már Kristófersson (V):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svarið. Eins og hann tók eftir reyndi ég að taka líkingu sem hentaði hans menntunarbakgrunni. Ég tel aftur að þarna föllum við í sömu gryfju, að fara að ræða um vísitöluna eins og hún sé verðbólgan. Það blasir við að ef það væri þannig þá gæti Alþingi einfaldlega sett lög og ákveðið að vísitala neysluverðs yrði bara föst. Myndi það leysa verðbólguvandamálið? Það er svona svipað og að úthluta læknum prikum með punkti við 37° sem hreyfist ekki neitt óháð því hvert hitastigið er og ég óttast að þessi misskilningur sé býsna útbreiddur, að við séum ekki að tala um mælitæki. Við erum að tala um fyrirbærið verðbólgu.

Mig langar kannski bara, til að undirstrika þetta, að fylgja minni fyrri spurningu eftir með einfaldri spurningu sem er: (Forseti hringir.) Segjum sem svo að við færum þessa leið og settum vísitöluna í hundrað og hún yrði bara föst þar. Hvernig myndi munurinn á verðtryggðum og óverðtryggðum vöxtum þróast eftir það?