vísitala neysluverðs og verðbólga.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að taka þetta hérna upp og með þessum hætti. Ég vona að hv. þingmaður sé ekki að vísa til þess að sá sem hér stendur hafi talað fyrir slíkum hókus-pókus lausnum að þingið geti sett hér lög, eins og er alveg rétt að er oft talað um hér í þessum sal og er náttúrlega stórkostlegur misskilningur. Við erum að nota vísitölu sem einhvers konar mælikvarða til að hjálpa inn í svona mælingar til að bera saman og auðvitað er það notað sem viðmið í lánasamningum. Ef það væri ekki fyrir hendi myndu menn nota eitthvað annað. Í því fælist auðvitað ekki nokkur neytendavernd. En það eru fyrst og fremst þrír þættir sem valda verðbólgu: Það er skortur á framleiðslu, framleiðsluskortur, það er of mikil eftirspurn og svo væntingarnar. Það er sá þáttur sem við erum að glíma við í dag og fyrst og fremst á húsnæðismarkaði. Að öllu öðru leyti virðist vera talsverð rénun í gangi, hagkerfið kólnar, þannig að ég hef sagt það og segi það enn og aftur: (Forseti hringir.) Þetta er allt að koma. En það eru engar hókus-pókus lausnir til, ég tek undir það með hv. þingmanni.