155. löggjafarþing — 8. fundur,  19. sept. 2024.

stefna í neytendamálum til ársins 2030.

221. mál
[11:10]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um stefnu í neytendamálum til ársins 2030. Tillagan var áður lögð fram á 154. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga og er hér með lögð fram að nýju efnislega óbreytt.

Virðulegi forseti. Ég vil taka það fram að hér ræðir um fyrstu heildstæðu stefnu í neytendamálum sem er lögð fyrir Alþingi Íslendinga. Aðdragandi þingsályktunartillögunnar má rekja til þess að í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er lögð almenn áhersla á eflingu neytendaverndar og að tryggja stöðu neytenda betur, m.a. í nýju umhverfi netviðskipta. Neytendamál hafa víðtæka skírskotun til samfélagsins og atvinnulífsins og mikilvægt er að til staðar sé skýr stefnumótun á því málefnasviði ásamt aðgerðaáætlun til næstu ára.

Á undanförnum árum hefur verið unnið að ýmsum breytingum á sviði neytendamála með það að markmiði að bæta löggjöf á því sviði, auka neytendavitund og styrkja stöðu neytenda. Að sama skapi eru mörg verkefni fram undan og þegar í vinnslu með sömu markmið. Bæði er að ræða um verkefni sem má rekja til aukinnar áherslu á neytendamál hjá ríkisstjórninni ásamt nýlegri löggjöf á Evrópska efnahagssvæðinu.

Löggjöf á sviði neytendamála hefur að stærstum hluta það markmið að leiðrétta aðstöðumun sem er á milli fyrirtækja og almennings, þ.e. neytenda, bæði almennt og vegna einstakra viðskipta. Í því felst m.a. að vernda neytendur gegn óréttmætum viðskiptaháttum fyrirtækja, upplýsa neytendur og veita þeim skilvirk úrræði til að leita réttar síns.

Sú tillaga til þingsályktunar sem ég mæli fyrir er efnislega þrískipt. Í fyrsta hluta hennar er lýst framtíðarsýn neytendamála á Íslandi en hún er sú að á Íslandi sé traust og nútímaleg löggjöf á sviði neytendamála sem stenst samanburð við nágrannalönd Íslands og stuðla að virkri neytendavitund og trausti neytenda hvað varðar reglufylgni og markaðseftirlit. Jafnframt að hér verði fagleg og skilvirk stofnanaumgjörð um neytendamál með hagsmuni neytenda að leiðarljósi.

Í öðrum hluta tillögunnar kemur fram að meginmarkmið stefnu í neytendamálum sé að tryggja framangreinda framtíðarsýn til lengri tíma í því skyni að unnið verði að þeim aðgerðum og áherslum sem koma fram í þingsályktunartillögunni á tímabilinu frá 2024 til 2030 í samráði við helstu hagsmunaaðila.

Í þriðja hluta tillögunnar er síðan lögð fram aðgerðaáætlun sem lagt er til að unnið verði eftir til að tryggja framgang þessarar stefnu til ársins 2030. Koma þar fram níu skilgreindar aðgerðir með ábyrgðaraðilum og samstarfsaðilum. Umræddar níu aðgerðir lúta að eftirfarandi þáttum:

Fyrst ber að nefna endurskoðun löggjafar til að efla neytendavernd. Í annan stað stofnanaumgjörð neytendamála. Í þriðja lagi áhersla á netviðskipti og stafvæðingu á sviði neytendamála. Í fjórða lagi hina grænu umbreytingu í neytendamálum. Í fimmta lagi aukin neytendavernd á sviði fjármálaþjónustu og áhersla á fjármálalæsi. Í sjötta lagi aukin neytendavernd við fasteignakaup. Í sjöunda lagi áhersla á íslensku við markaðssetningu vöru og þjónustu. Í áttunda lagi neytendavernd gagnvart viðkvæmum hópum samfélagsins og að lokum áhersla á rannsóknir, upplýsingagjöf og fræðslu til að auka neytendavitund.

Nokkrar þessara aðgerða eru þegar að einhverju leyti hafnar en aðrar eru í mótun og undirbúningi. Sem dæmi um aðgerð sem þegar er hafin má nefna frumvarp til nýrra markaðssetningarlaga sem stefnt er að því að leggja fram á Alþingi á næstu dögum og felur í sér almennar lagaúrbætur til eflingar neytendaverndar.

Virðulegur forseti. Einnig verða á næstu dögum kynntar niðurstöður úr vinnu starfshóps um aukna neytendavernd við fasteignakaup og annars starfshóps um aukna neytendavernd á sviði fjármálaþjónustu. Jafnframt má hér nefna viljayfirlýsingu menningar- og viðskiptaráðuneytis og Neytendastofu um átaksverkefni sem miðar að því að auka vitund fyrirtækja og almennings um íslenskuákvæði laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, sem og styrkingu þess ákvæðis í áðurnefndu frumvarpi til nýrra markaðssetningarlaga.

Verði þingsályktunartillaga sú sem ég hér með mæli fyrir samþykkt er ráðgert að hún hafi einhvern kostnað í för með sér, t.d. í auknum verkefnum Neytendastofu, en það er almennt innan ramma og kallar ekki á ný útgjöld fyrir ríkissjóð.

Þessi tillaga til þingsályktunar um stefnu í neytendamálum til ársins 2030 var unnin af menningar- og viðskiptaráðuneyti að höfðu samráði við Neytendastofu og Neytendasamtökin. Drög að tillögunni voru lögð fram í samráðsgátt stjórnvalda og bárust tíu umsagnir sem almennt voru allar jákvæðar.

Virðulegi forseti. Ég tel að hér sé um brýnt þingmál að ræða og það sé mikilvægt að til staðar sé heildstæð stefnumótun stjórnvalda í þessum mikilvæga málaflokki sem er studd með skilgreindri aðgerðaáætlun til næstu ára. Slík stefnumótun er til þess fallin að leggja grunn að frekari aðgerðum og lagabreytingum sem og auknu samstarfi milli stjórnvalda, hagsmunaaðila og samtaka á þessu sviði, neytendum í landinu til hagsbóta.

Virðulegur forseti. Að lokinni umræðu þessari legg ég til að þessari þingsályktunartillögu verði vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar til umfjöllunar.