stefna í neytendamálum til ársins 2030.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þær athugasemdir sem hv. þingmaður hafði við neytendastefnuna. Ég vil nefna að undir 8. lið í þessari þingsályktunartillögu er sérstaklega fjallað um neytendavernd fyrir viðkvæma hópa og ég held að það væri mjög gagnlegt ef það væri hægt að víkka út skilgreiningu á þessum viðkvæmu hópum. Þá er hægt að taka inn sérstaklega, eins og nefnt var af hv. þingmanni, innflytjendur og leigjendur eða finna þeim jafnvel einhvern annan stað, kannski passar það ekki undir þessum 8. lið, en mér er það bæði ljúft og skylt að skoða það frekar.
Varðandi græna umbreytingu í neytendamálum er einnig fjallað um það sérstaklega og aukna áherslu á sjálfbærni og baráttu gegn grænþvotti þannig að ég tel að sú vinna sem ráðuneytið hefur farið í nái að mörgu leyti utan um þær athugasemdir sem hv. þingmaður var með. En eins og ég hef oft sagt hér er eitt það mikilvæga við þingræðið einmitt að við getum átt þetta samtal hér í þingsalnum og stefnan fer svo til nefndar þar sem er hægt að bæta og laga og gera betur. En ég er sammála hv. þingmanni að það er mjög mikilvægt að auka neytendavernd og neytendavitund.