155. löggjafarþing — 8. fundur,  19. sept. 2024.

stefna í neytendamálum til ársins 2030.

221. mál
[11:34]
Horfa

Eva Dögg Davíðsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir andsvarið og ég tel þetta í rauninni bara mjög flottan byrjunarpunkt á umræðunni og þessari þinglegu meðferð sem vissulega öll mál fá. Ég fagna því að ráðherra lýsi sig jákvæða gagnvart því að telja upp fleiri viðkvæma hópa og ég tel að í svona stefnumótun sé það einmitt mikilvægt að við reynum að ná utan um sem flesta jaðarsetta hópa. Það að skilja einhverja eftir utan sviga getur haft neikvæð áhrif og ég held að það sé bara jákvætt að við komum þessum hópum fyrir.

Varðandi grænu málin þá er ég kannski ekki alveg sammála því að það sé svona skýrt, þetta er svolítið breitt enn þá, finnst mér, hvernig þessi útfærsla verður og vissulega er það hluti af vinnunni eftir því sem fram vindur hvernig það verður útfært. En mig langaði samt að spyrja ráðherrann um upprunamerkingar á vöru. Það hefur annars vegar verið svolítil umræða um upprunamerkingar á íslenskri vöru. Landbúnaðarvörur á Íslandi eru vissulega merktar að einhverju leyti. En merkingar á kolefnisspori, hafa þær verið á borði hæstv. ráðherra? Er það eitthvað sem kemur til greina í seinni útfærslu undir þessum grænu málum?