155. löggjafarþing — 8. fundur,  19. sept. 2024.

stefna í neytendamálum til ársins 2030.

221. mál
[11:36]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Eins og ég nefndi í svari mínu áðan þá höfum við verið að vinna með upprunamerkingar á vörum og hér voru sérstaklega nefndar íslenskar vörur sem ég tel að sé mjög mikilvægt að merkja og ég tala nú ekki um landbúnaðarafurðir. Við höfum ekki verið að skoða sérstaklega frekari græn skref. En eins og ég nefndi þá held ég að þetta sé eitthvað sem nefndin getur tekið til umræðu og ég fagna því að sjálfsögðu að það verði rætt efnislega. Ég vek líka athygli á því að við þurfum auðvitað alltaf líka að huga að verðlagningu og öðru slíku, hvernig það kemur við merkingu á vörum, hvort það fari beint inn í verðlagið eður ei. En sjálf var ég nú að segja að ég er mjög hrifin af þessu varðandi íslenskar landbúnaðarafurðir þannig að ég fer svona í hálfgerðan hring þegar ég er að svara þessu. En aðalatriðið er að neytandinn sé upplýstur um uppruna þeirrar vöru eða þjónustu sem hann er að kaupa og að hann fái sem bestar upplýsingar og upplýsingar er varða grænu skrefin og loftslagsmálin eru að sjálfsögðu mikilvægar.