155. löggjafarþing — 8. fundur,  19. sept. 2024.

stefna í neytendamálum til ársins 2030.

221. mál
[11:38]
Horfa

Eva Dögg Davíðsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið og ég heyri að við erum að mörgu leyti mjög sammála og það gleður mig að heyra að við erum sammála um að neytendur þurfi að geta tekið upplýstar ákvarðanir. Við erum einnig sammála um að grænar ákvarðanir eiga ekki að vera flóknar og erfiðar. Ég fagna þessu og fyrst ég stend hérna þá get ég upplýst þingheim um það að ég hef lagt fram á fyrra þingi þingsályktunartillögu tengda fýsileikakönnun á kolefnisporsmerkingum á vörum. En það væri vissulega spennandi á sviði nefndarinnar að taka þessa umræðu lengra.