námsgögn.
Ég þakka ráðherra fyrir svarið. Mér finnst mjög gott að heyra að það eigi ekki að stíga inn í frelsi kennara til að ákveða og setja á dagskrá námsefni sem þeir vilja setja á dagskrá. Mig langar að spyrja, af því að ég hef átt samtöl við skólameistara og þeir vilja stíga inn í stafrænt umhverfi, hvort það sé einhver stefna um innleiðingu á stafrænum námsgögnum, hver afstaða ráðherra sé til prentaðra námsgagna, hvort það sé ekki fortíðin, hvort við ætlum að fara að stíga inn í framtíðina, hvort það sé ekki spurning um að við séum leiðandi sem stjórnvöld í því að verða umhverfisvænni, minnka aðeins prentmagnið og útprentuðu blöðin — það er framtíðin tel ég. Hver er afstaða ráðherra til þessa?
Það kom mér á óvart í frumvarpinu að ætlunin sé að gera námsgögn í tónlistarskólum gjaldfrjáls. Mér finnst það áhugaverður punktur og velti því hreinlega fyrir mér hvernig það kom til, sérstaklega af því að við erum að stíga skrefið að gera þessi námsgögn þá gjaldfrjáls. Hefur það verið kostnaðarmetið? Það er væntanlega utan þess sem við þekkjum í námsgagnagerð menntamálastofnana sem hafa farið með námsgagnagerð undanfarin ár. Hver er kostnaðurinn við að grípa inn í þarna og gera námsgögn í tónlistarskólum gjaldfrjáls? Hvaða námsgögn eru þetta? Og er þetta leið til að ríkisvæða námsgögn sem voru áður á höndum einkaaðila?