námsgögn.
Virðulegi forseti. Ég ætla að byrja á að fagna því að við séum að ræða þetta mál hér í dag og að við séum að ræða það við upphaf þings þannig að nefndin hafi góðan tíma til að fara ofan í saumana á frumvarpinu og skilja kerfið eins og það er og í hvaða átt við erum að fara. Þetta mál sem hæstv. mennta- og barnamálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, leggur fram er gott skref í rétta átt að breytingum á kerfinu okkar utan um útgáfu námsgagna. Kerfið hefur staðið í stað í áraraðir og það hefur verið kallað eftir breytingum í mörg ár og rétt eins og hæstv. ráðherra fór yfir í ræðu sinni hefur þetta staðið til lengi. Það hafa orðið ýmsar breytingar eins og námsgagnasjóður og þróunarsjóður námsgagna sem voru rétt skref, góð skref í rétta átt, en vegna smæðar sjóðanna þá hafa ekki orðið þær raunverulegu breytingar sem ætlast var til að yrðu með tilkomu þeirra sjóða.
Verulega hefur skort á fjölbreytni, nýsköpun og framþróun á námsgögnum. Aðgengi að námsgögnum á stafrænu formi er verulega ábótavant og þróa verður mun hraðar rafræn og gagnvirk námsgögn. Við erum að sjá mikla þróun á samfélaginu okkar og gagnvirk námsgögn eru eitthvað sem verður algjört framtíðarmál og þess vegna er aðkoma menntatæknifyrirtækja mjög mikilvæg í þessu efni líka. Grunnskólakennarar hafa sömuleiðis gert kröfu um meiri fjölbreytni í vali á námsgögnum en þeir hafa í raun afar takmarkað val um námsgögn önnur en þau sem ríkisstofnanir hafa haft á boðstólum. Stofnanir sem hafa farið með útgáfu námsgagna hafa vissulega veitt skólunum færi á að nýta hluta fjárveitinga sinna til kaupa á öðru námsefni í gegnum námsgagnasjóð en sá hluti hefur verið agnarsmár og því ekki náð að skipta sköpum í námsgagnagerð og ekki breytt kerfinu eins og kannski við hefðum viljað ná fram. Svo finnst mér frelsi kennara til að setja námsefni á dagskrá skipta gríðarlega miklu máli í þessu efni og ég vona að í samtali í nefndinni munum við fá það fram hvernig kennarar sjá þetta kerfi fyrir sér, þótt ég viti að þeir hafi vissulega komið mjög ríkulega að samningu þessa frumvarps, sem skiptir máli.
Frumvarp þetta má segja líka að komi fram á mjög mikilvægum tíma varðandi stöðu barna í samfélaginu og umræðu um hana í samfélaginu okkar. Mér finnst við vera að setja áherslu á réttan stað í skólakerfinu með því að leggja þetta mál fram, sem hæstv. ráðherra gerir, því með því finnst mér við vera að setja fókus á gæði náms. Við erum að leggja okkur fram í því að gæði náms aukist og ég held að það sé til hagsbóta fyrir öll börn sem eru í skóla og þess vegna fagna ég því að við séum að ræða þetta mál.
Þær fjölmörgu áskoranir sem eru í skólakerfinu eru stórar og það má t.d. nefna fjölgun nemenda með annað móðurmál en íslensku en námsgögn fyrir börn með annað móðurmál en íslensku eru óviðunandi í dag. Það er risastór áskorun í íslensku samfélagi og hér verðum við að gera betur. Kennarar eiga ekki að þurfa að standa í því að útbúa efni sjálfir, að vera kannski að þýða yfir á tungumál sem þeir þekkja ekki endilega, þannig að það er mikilvægt að það komi faglegra efni fram á mismunandi tungumálum sem nálgast betur þá fjölmörgu einstaklinga með fjölbreyttan bakgrunn frá mismunandi menningarheimum sem búa hér á landi. Þannig styðjum við líka inngildandi menntun.
Ég lagði fram á sínum tíma breytingartillögu við frumvarp um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu þegar það var lagt fram, um breytingar á fyrirkomulagi námsgagnaútgáfu. Það var í því augnamiði að afnema ríkiseinokun á námsgagnaútgáfu. Ég tel þetta frumvarp vera skref í rétta átt. Mitt frjálslyndishjarta hefði auðvitað viljað stíga stærri skref en ég skil að þetta eru skynsamleg skref sem verið er að stíga og ég hlakka til að skoða aðeins betur hvernig við getum tryggt að í framkvæmd verði lögin opin fyrir fleiri aðila en ríkið að gefa út námsgögn. Núgildandi lög gefa ekki til kynna að það sé ríkiseinokun á útgáfu námsgagna, það stendur hvergi í lögunum en í rauninni er framkvæmdin sú að það er alger ríkiseinokun á útgáfu námsgagna. Þess vegna skiptir máli að við í nefndinni skiljum hvert við erum að fara og áttum okkur á því hver framkvæmdin raunverulega verður á lögunum. Hér á landi erum við með kerfi sem er mjög frábrugðið þeim kerfum sem eru í löndunum í kringum okkur því að alþjóðlegur samanburður bendir til þess að almennir bókaútgefendur séu í miklu meiri mæli að gefa út námsgögn þar. Námsgagnaútgáfa almennra bókaútgefenda á Norðurlöndunum er hornsteinn í rekstri þeirra og jafnvel talað um að 25–30% af rekstri almennra bókaútgefenda séu eingöngu námsgagnagerð. Það er fjarri lagi hérlendis. Þetta skiptir sköpum fyrir almenna bókaútgáfu ef þessi markaður er tekinn inn í almennu bókaútgáfuna. Það samtal þurfum við líka að eiga inni í nefndinni, hvernig einkaaðilar telja sig geta fótað sig í þessu kerfi. Það skiptir máli.
Það hefur verið dálítið gagnrýnt og þau rök hafa oft komið fram að markaðurinn okkar sé svo smár og þess vegna verði ríkið einhvern veginn að gefa út öll gögn eða verði að stíga svona með afgerandi hætti inn á markaðinn, sem einkaaðilar geta vissulega séð um. Þessi rök finnst mér ódýr og það er hægt að gera þetta með mun betri hætti og með mun ríkari aðkomu einkaaðila. Það er t.d. hægt að eiga betra samtal við einkaaðila inn á hvaða svið þeir vilja stíga. Ég veit að almennir bókaútgefendur hafa nefnt að þeir vilji stíga inn á markaðinn í íslensku og stærðfræði, þessum stóru námsgreinum þar sem þeir geta kannski selt gögn í meira magni en í smærri greinunum. Þá er okkur í lófa lagið að gera fyrirkomulagið þannig að það sé útboð í þeim greinum sem ekki ná að uppfylla kröfur um námsgögn.
Ég kom aðeins inn á það hversu mikilvæg mér finnst aðkoma menntatæknifyrirtækja en vegna smæðar markaðarins á Íslandi þá er það alveg á hreinu að þau menntatæknifyrirtæki sem eru að gefa út einhvers konar gagnvirkt námsefni eða leiki eða slíkt á íslensku eru að gera það vegna hugsjóna sinna, ekki vegna peninga. Því finnst mér að við verðum að gera þessu dálítið hátt undir höfði og ýta undir að þessir aðilar nái kannski líka fótfestu á stærri mörkuðum úti í heimi.
Nú er ég svolítið búin að tala bara um hvernig ég sé kerfið fyrir mér og minna um innihald frumvarpsins en ég tek undir með hv. þm. Steinunni Þóru Árnadóttur sem nefndi áðan skilgreininguna á hugtakinu námsgagn, ég held að það sé eitthvað sem við þurfum klárlega aðeins að fara yfir í nefndinni af því að það verður að vera á hreinu. Erum við að tala um hamar eða erum við að tala um bók? Kannski finnst einhverjum þetta skýrt en það er greinilega ekki nógu skýrt og þarf að skýra út í nefndaráliti.
Þessir sjóðir sem hafa verið starfræktir og á núna að gera hærra undir höfði, námsgagnasjóður og þróunarsjóður námsgagna, eru mikilvægir og ég fagna því að það eigi að auka framlög til þeirra og nýta þá betur. Ég tel það vera gott skref í rétta átt. Sjálf, þó svo að hæstv. ráðherra hafi farið yfir það að ég sat í starfshópi sem skilaði af sér skýrslu um námsgögn, þá klóra ég mér í kollinum yfir því hvernig útgáfuáætlun námsgagna til fimm ára á að virka, sérstaklega vegna þess að við erum að reyna að vera kvikari á fótunum og bregðast hraðar við breytingum og þá finnst mér skjóta örlítið skökku við að það eigi að gera áætlun um útgáfu gagna fimm ár fram í tímann þegar við áttum okkur ekki alveg á því hvernig samfélagsgerðin verður eftir fimm ár. Framkvæmd þessa atriðis er enn þá spurningarmerki í mínum huga en við munum auðvitað vinna þetta mál áfram þannig að ég geri ráð fyrir því að það verði skýrara. Sú áætlun verður unnin í samvinnu og samráði við hagsmunaaðila, kennara, skóla og atvinnulífið. Ég velti því svolítið fyrir mér hvort útgáfuáætlunin hafi verið sett fram til að ramma betur inn hvernig einkaaðilar geti stigið inn á þennan markað og þá kannski takmarkað, sem mér þætti miður. Það eru ýmsar spurningar sem ég hef um útgáfuáætlunina sem ég hlakka til að leita svara við.
Ég fór aðeins inn á gjaldfrjáls námsgögn í andsvörum mínum við hæstv. ráðherra og ég byrjaði á því að segja, af því að ég gerði ráð fyrir því að hann myndi gera grín að mér ef ég ætlaði að standa í vegi fyrir því að námsgögn yrðu gjaldfrjáls, að ég er ekki andvíg því að börn undir 18 ára aldri hafi aðgang að námsgögnum óháð efnahag. En þá þurfum við að skilgreina hvað eru námsgögn og skilgreina betur hvað er til boða. Þannig að það finnst mér vera göfugt markmið. En eftir að þessi áform fóru út í kosmósið hef ég heyrt í mörgum skólameisturum sem spyrja sig: Menntaskólinn er núna þrjú ár. Erum við þá að skilja eftir síðasta árið þar sem börn, sem eru þá orðnir fullorðnir einstaklingar, þurfa að byrja að borga fyrir námsgögn? (Gripið fram í.) Já, þetta er bara spurning um hvernig þetta er útfært. Er þetta á afmælisdegi, á slaginu þegar þú verður 18 ára eða verður það skilgreint sem fyrstu tvö árin í framhaldsskóla? Þetta er líka álitamál sem við þurfum að skoða í framhaldinu.
Af því að mér er tíðrætt um frelsið í útgáfu námsgagna þá langar mig samt að við stígum með mun meira afgerandi hætti inn í stafrænt umhverfi og tel að við getum gert það, aðstoðað kannski betur kennara sem starfa á gólfinu við innleiðingu á stafrænum námsgögnum. Við erum að sjá það með tilkomu gervigreindarinnar að það myndast gap á milli nemenda og kennara við nýtingu á gervigreindinni í námi. Og það er bara spurning hvort kennarar sitji eftir og átti sig ekki á þeim tæknibreytingum sem eru að verða í okkar samfélagi, af því að krakkarnir eru farnir að hlaupa svo margfalt hraðar en við. Meira að segja ég, ég er bara rétt að skríða yfir þrítugt, eiginlega barn sjálf. Ég held að við þurfum öll að vera tilbúin að taka afgerandi skref í átt að því sem er framtíðin og er komið til að vera. Ég myndi vilja sjá það líka, t.d. í útgáfuáætlun, að það væri áherslupunktur að stíga inn í framtíðina.
En annars hlakka ég bara til að takast á við þetta hugðarefni mitt til síðustu ára í allsherjar- og menntamálanefnd og vænti góðs samstarfs.