námsgögn.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðu hennar. Sem betur fer sýnist mér að það sé mjög margt sem við erum sammála um þótt við höfum kannski einhverjar ólíkar áherslur í sumum atriðum. Það er eitt sem mig langaði aðeins að inna hv. þingmann eftir til að auka skilning minn. Það snýst um það að í 1. gr. er fjallað um gildissvið þessara laga, að lög þessi gildi um stuðning ríkisins við nýsköpun, þróun, gerð, þýðingu og útgáfu námsgagna á hvaða formi sem þau eru fyrir leik-, grunn-, framhalds- og tónlistarskóla. Þarna er greinilega ríkið að koma inn með fjármagn til að styðja við þetta, sem er vel. Ég er bara aðeins að hugsa um ummæli hv. þingmanns þegar kemur að einkaaðilum að framleiða námsgögn, sem ég held að geti bara verið fínt, en hv. þingmaður talaði um að einkaaðilar gætu selt námsgögn í meira mæli. Þetta vekur auðvitað upp spurningar eins og: Selt hverjum? Þá líklega ríkinu sem er þá mögulega að taka þátt í hærri kostnaði, þ.e. að einkaaðilar græði í gegnum niðurgreiðslu ríkisins á gerð námsgagna. Það finnst mér vera eitthvað sem við þurfum að hugsa út í því að í mínum huga væri það ekki góð nýting á opinberu fé og gæti unnið gegn hugmyndinni um það að hér rekum við samfélag þar sem aðgengi að námi er fyrir alla óháð efnahag. Gæti hv. þingmaður aðeins útskýrt þetta betur fyrir mér?