155. löggjafarþing — 8. fundur,  19. sept. 2024.

námsgögn.

222. mál
[12:20]
Horfa

Berglind Ósk Guðmundsdóttir (S) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þarna kannski kristallast munurinn í hugmyndafræði okkar og nálgun okkar á þessu viðfangsefni. Ég nefndi það í ræðu minni að ég teldi til bóta ef almennir bókaútgefendur gætu komist inn á námsgagnamarkaðinn því það myndi styðja almennt alla bókaútgáfu. Fyrirkomulagið eins og það er í dag er að Námsgagnastofnun og síðast Menntamálastofnun, núna Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, hafa stundum farið í alls konar útboð á verkefnum og það hefur virkað ágætlega. Það er hægt að gera það með sama hætti í þessu fyrirkomulagi sem á að setja á fót núna. Ég er ekki sammála hv. þingmanni að orðið gróði sé neikvætt í þeim skilningi að almenn bókaútgáfa geti vaxið og dafnað með aðkomu sinni að námsgagnamarkaði.