155. löggjafarþing — 8. fundur,  19. sept. 2024.

námsgögn.

222. mál
[12:22]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég tel heldur ekki að gróði sé neikvætt orð en það er spurning um samhengi hlutanna, gróði hvers og í hvaða tilgangi. Mér finnst skipta máli að gerð námsgagna verði ekki að gróðavettvangi með niðurgreiðslu ríkisins á námsefni til þess að bókaútgefendur geti farið að greiða sér arð í gegnum styrki frá ríkinu. Þá finnst mér við vera komin á skrýtinn stað, svipað og til að mynda þegar kemur að heilbrigðisþjónustunni. En það þýðir auðvitað alls ekki að einkaaðilar geti ekki framleitt námsgögn. Mér finnst þetta meira vera spurning um umgjörðina og hvernig við getum nýtt fjármuni ríkisins með sem bestum hætti til að þeir gagnist einmitt í það að reka hér öflugt opinbert skólakerfi sem nýtist öllum og þar sem m.a. námsgögn eru gjaldfrjáls fyrir nemendurna. Þetta er einn af þeim hlutum sem mér finnst bara mikilvægt að við skoðum í samhengi og að við skoðum hvernig umgjörðin sem við búum til nýtist samfélaginu sem allra best.