námsgögn.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni síðara andsvarið og enn og aftur kristallast kannski mismunurinn á hugmyndafræði okkar. Ég taldi mig hafa verið mjög skýra með það að almennir bókaútgefendur myndu græða á því að hafa námsgagnaútgáfu hjá sér, t.d. með því að gera þeim kleift að ráða fleira starfsfólk til að sinna bókaútgáfu almennt. Ég er sammála því að við viljum reka mjög öflugt skólakerfi og við eigum að skoða það hvernig hver einasta króna getur nýst vel. Með því einmitt að opna á aðkomu einkaaðila að útgáfu námsgagna erum við að gera nákvæmlega það. Við erum að fara að nýta krónurnar okkar betur, að mínu mati. Við fáum inn fagleg sjónarmið þeirra sem eru að sinna bókaútgáfu á gólfinu allan daginn og nýtum þar með fjármuni betur, myndi ég telja, og aukum fjölbreytileikann í námsgagnaútgáfunni öllu samfélaginu til heilla. Svona pólitík um arðgreiðslur í skólakerfinu eða heilbrigðiskerfinu finnst mér bara ekki eiga við í umræðu um námsgögn á þessu stigi og finnst það kannski ekki vera punktur sem skiptir máli í þessu samhengi af því að við erum að leggja til þessar breytingar til að efla gæði náms, sem er punktur númer eitt, tvö og þrjú. Það er það sem við eigum að hafa til leiðsagnar og sem okkar markmið í öllum þeim breytingum sem við gerum á skólakerfinu.