námsgögn.
Virðulegur forseti. Ég ætla að óska hæstv. ráðherra til hamingju með að vera kominn með þetta frumvarp fram hér á allra fyrstu dögum þingsins. Það er mikilvægt fyrir okkur í allsherjar - og menntamálanefnd svo að við getum afgreitt það hratt og vel. Ég óskaði reyndar eftir að taka til máls þegar vinkona mín, hv. þm. Steinunn Þóra Árnadóttir, var að tala því að ég áttaði mig á því að við værum ekki sammála um ákveðna þætti sem hún fór þarna yfir. Hv. þm. Berglind Ósk Guðmundsdóttir fór svo ágætlega yfir sýn okkar Sjálfstæðismanna hvað þetta varðar þannig að ég held að það sé svo sem búið að dekka það mjög vel. En það breytir ekki því að ég held einmitt að þessir flokkar allir geti komist að góðu samkomulagi um þetta frumvarp sem hér liggur fyrir þó að okkur kunni að greina á um önnur atriði.
Mig langaði bara að segja við þetta tilefni að það er rosalega mikilvægt fyrir okkur að fá góða umræðu bæði í þinginu og á vettvangi allsherjar- og menntamálanefndar um menntamálin. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem hefur nú tekið til starfa, og gerði það eftir að hæstv. ráðherra kom hér inn með þetta frumvarp, vantar að mínu viti þessi tæki varðandi námsgagnagerðina. Hana vantar líka matsferlana eða samræmda matið okkar svo og inngildingarfrumvarpið. Þetta er allt fylling inn í þessa mikilvægu stofnun sem við höfum sett á laggirnar. Þannig að ég ítreka að við þurfum að fá öll þessi mál inn hið fyrsta svo að hægt sé að eiga um þau góðar umræður, bæði hér í þingsal en ekki síður inni í nefndinni sjálfri.
Mig langar að segja varðandi gjaldfrjálsu námsgögnin að það kom mér raunverulega á óvart þegar ég lærði það að við skærum okkur úr hér á Íslandi miðað við hin Norðurlöndin. Ég hygg að hér séum við sammála um jafnrétti til náms og mikilvægi skólakerfisins og þennan grunneiginleika íslensks samfélags að hér eigi öll börn að hafa jöfn tækifæri. Þess vegna hef ég skilning á því að við skulum horfa til hinna Norðurlandanna hvað það varðar en ég tek undir þessar vangaveltur sem hafa komið hérna varðandi hvað séu námsgögn. Ég spurði að því í hv. allsherjar- og menntamálanefnd í morgun, þar sem hæstv. ráðherra og starfsmenn ráðuneytisins voru til svara, og þá töluðu þeir líka um að það gæti átt við verkfæri, eins og hamar sem hefur verið nefndur hér, þ.e. verkfæri sem væru til nota í skólanum. En mér finnst það ekkert rosalega skýrt af þessu frumvarpi sem hér liggur fyrir þannig að ég hygg að við þurfum að fara yfir það í hv. allsherjar- og menntamálanefnd. Svo velti ég líka fyrir mér útfærslunni varðandi aldurinn, alveg eins og hv. þm. Berglind Ósk Guðmundsdóttir kom inn á. Hvað erum við að tala um í því? Það gæti verið svolítið flókið þegar eitt barn á afmæli í janúar og annað í desember. Gildir þá ekki það sama yfir það skólaár? Þannig að það er líka eitthvað sem við þurfum aðeins að velta fyrir okkur.
Mig langar að segja það út frá umræðunni sem var hérna áðan varðandi námsgagnagerð að ég held að það sé ofboðslega mikilvægt að einkamarkaðurinn geti líka komið öflugur inn í námsgagnagerð. Það er það sem við sjáum á hinum Norðurlöndunum og í öðrum löndum sem við viljum gjarnan bera okkur saman við. Ef það verður einhvern tíma þannig að íslensk bókaútgáfa verði að kafna í arðgreiðslum, ef svo mætti að orði komast, þá skulum við alveg velta þessu fyrir okkur aftur en sú er ekki staðan núna. Við höfum farið í ákveðinn ríkisstuðning t.d. við íslenska bókaútgáfu og vandamálið er enn til staðar og okkur vantar fleiri bækur og sérstaklega fyrir börn og ungmenni og okkur vantar fleiri bækur sem eru þýddar fyrir íslensk börn og ungmenni. Ég sótti ráðstefnu um læsi á Akureyri síðasta laugardag þar sem var verið að fjalla um ýmis mál þessu tengd. Þar var ágætismaður, Bragi Valdimar Skúlason, sem kom upp og fór svona aðeins yfir það hvaða bækur hefðu t.d. verið í boði þegar hann var að alast upp, sem var svipað og þegar ég var að alast upp, og hvað væri í boði fyrir börn í dag. Þetta er svo gígantískur munur. Bækur og lesefni eru í mikilli samkeppni við allt sem er í boði á internetinu; allir þessir tölvuleikir, allar þessar sjónvarpsþáttaraðir og bíómyndir og þetta er allt bara í símanum hjá krökkunum eða í fartölvunum. Áreitið er svo ofboðslega mikið. Þegar við miðum við rekstur þessara afþreyingargeira, hvort sem það er tölvuleikjageirinn eða kvikmyndageirinn eða hvað það er, þá eru þetta náttúrlega bara einhverjar pínuponsulitlar baunir sem við erum að tala um í að gera íslenskt efni fyrir ungmenni í skólum hér, þannig að við þurfum auðvitað að horfa til þess.
Ég ætla líka að segja að ég skil alveg þessa umræðu sem hefur verið í gangi varðandi það að það sé ákveðin hræðsla við sóun. Það er eitthvað sem við verðum að sjá til þegar við samþykkjum svona lög og ætlum að samþykkja gjaldfrjáls námsgögn, þ.e. að framkvæmdin sé með þeim hætti að það sé ekki sóun í kerfinu, það sé ekki eins og var hérna áður, og ég veit ekki nákvæmlega hvernig það er í dag, þegar maður kom stundum í birgðageymslur í grunnskólum landsins sem voru fullar af skólabókum og það voru til bekkjarsett og kennararnir bara nenntu ekki að kenna einhverja bók en skólinn hafði samt keypt hana einhvern veginn. Það þarf auðvitað að tryggja að skólarnir hafi mikið frelsi í því að kaupa þau gögn sem þeir hyggjast kenna og nota og tryggja að svo verði áfram. Að sjálfsögðu á þetta ekki bara við um bækur. Þetta á líka við um alls konar önnur námsgögn sem eru auðvitað í miklum mæli komin yfir í hið stafræna form. Ég held engu að síður að bók sé líka mikilvæg. Það er líka mikilvægt að börn læri að lesa af blaði. Einhvern veginn þarf að finna góða blöndu af öllu þessu.
Aftur ítreka ég þakkir til hæstv. ráðherra. Við í allsherjar- og menntamálanefnd munum fara vel yfir þetta og við hlökkum til að takast á við bæði þetta frumvarp en ekki síður hin tvö sem eru væntanleg núna á næstunni um þessi mikilvægu mál. Ég vona svo sannarlega að þingheimur allur verði tilbúinn að taka þátt í þessari vinnu með okkur og styðja það að við byggjum hér upp íslenskt menntakerfi því að það eru miklar áskoranir í því. Við þurfum hreinlega að gera betur.