155. löggjafarþing — 8. fundur,  19. sept. 2024.

námsgögn.

222. mál
[12:33]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Mig langar mig að byrja á því að óska hæstv. mennta- og barnamálaráðherra til hamingju með að vera komin með fyrsta frumvarpið sem við erum að ræða, fyrir utan fjárlagafrumvarp og bandorm. Það er greinilegt að ráðherra var fljótari að koma þessu í gegn heldur en flestum öðrum stjórnarmálum. Það virðist vera einhver skortur á þeim. Það er líka búið að vera athyglisvert, og hlýtur vera ánægjulegt fyrir hæstv. ráðherra, að þeir stjórnarþingmenn sem hafa tekið til máls hafa tekið nokkurn veginn alla þá póla sem til eru á málinu. Það er spurning hvaða pólar eru eftir fyrir okkur í stjórnarandstöðunni til að ræða um þegar þið eruð greinilega öll búin að rífast í allar áttir með þetta. En það gerir nú málið bara skemmtilegra. Ég held að það verði mjög áhugaverðar umræður í allsherjar- og menntamálanefnd. Við skulum vona, þar sem þetta er fyrsta stjórnarfrumvarpið sem kemur þar inn, að þið hafið þá ekkert annað að gera en að ræða það næstu vikurnar þannig að málið fari nú hratt og auðveldlega hérna í gegn, enda gott fyrir hæstv. ráðherra að geta bent á að nú verði námsgögnin ókeypis. Það er nú gott á kosningaári að geta gert það, rétt eins og Vinstri grænir geta slegið sig til riddara með því að nú séu skólamáltíðirnar ókeypis.

En þetta skiptir máli. Báðir þessir hlutir skipta máli þegar kemur að því að tryggja jöfnuð. Það er nefnilega þannig með marga af þeim sem hér búa að þeir hafa hreinlega ekki efni á því að kaupa námsgögn fyrir börnin sín, rétt eins og þeir höfðu ekki efni á því að borga skólamáltíðir. Það hefur ekki bara sýnt sig hér heldur eru dæmi um að sams konar hlutir hafi verið settir í gegn víðs vegar um heiminn, meira að segja alla leið niðri í Afríku, að þessir hlutir skipta máli; matur og námsgögn. Við megum ekki við því að missa of mikið af börnunum okkar úr náminu. En það þarf að taka til hendinni í mörgu þar. Það er ekki nóg að búa bara til ný námsgögn, það þarf líka virkilega að fara í það að skoða hvað við getum gert til að bæta kennslu og bæta þá umgjörð sem er um námið hér á landi. Ég vona að við getum tekið góðar umræður um það þvert á flokka vegna þess að þarna erum við virkilega að tala um framtíð barnanna okkar og ef við finnum ekki einhvern góðan gullinn meðalveg þar þá held ég að við séum ekki að valda starfi okkar hérna. Ég vona bara að þegar kemur að þessum málum þá tökum við virkilega á þessu.

Ég veit að það hefur verið góð vinna líka innan ráðuneytisins. Ég sat í hóp sem ráðherra skipaði varðandi farsældarfrumvörp og skólafrumvörp og annað sem hefur verið að koma hingað inn. Þar höfum við verið að taka á því t.d. hvernig eigi að taka á börnum með mjög mikla erfiðleika, hvernig eigi að taka það þvert á skólakerfið. Það er mikilvægt að við séum að vinna í slíkum hlutum. Síðustu vikur hafa sýnt okkur líka, vegna ofbeldis og annars, að við þurfum að byrja að taka á því strax og börnin koma í skólann og jafnvel fyrr. Það er mikilvægt að við stöndum þar saman.

Námsgögnin skipta líka máli vegna þess að við þurfum að vera með námsgögn sem byggja börnin vel upp. Það hefur margt breyst þegar kemur að því. Það sem var kennt þegar ég var í grunnskóla er kannski ekki alveg það sama og kennt er núna og það þarf ekki endilega að kenna hlutina heldur á sama máta. Það hefur sýnt sig t.d. að það að geta flett upp upplýsingum mjög auðveldlega gerir það að verkum að við þurfum ekki að kenna börnum allan þann páfagaukalærdóm sem við þurftum að ganga í gegnum, að muna öll ártöl og ýmislegt þannig. Við þurfum miklu meira rökfræðihugsun og að geta lesið og lært að átta okkur á hvort hlutir séu sannir eða ekki og hvernig við finnum út úr því. Þetta eru allt mál sem við þurfum að gera. Námsgögn geta líka verið eitthvað annað heldur en bara bækur og pappír.

Við prófuðum sem fjölskylda þegar börnin okkar voru í áttunda, níunda og tíunda bekk að fara í þrjá mánuði til Bandaríkjanna og við bara sömdum við skólann sem börnin voru í um að við myndum kenna þeim sjálf þennan tíma, fengum námsgögnin og kenndum þeim. Eitt af því sem við komumst t.d. að var að þegar kom að hlutum eins og stærðfræði þá höfðu sum af börnunum okkar bara hreinlega misst úr ákveðna þekkingu. Eitt barnið hafði ekki lært að deila. Það kom að sjálfsögðu niður á viðkomandi þegar var verið að tala um almenn brot o.s.frv. Og hvernig fundum við þetta? Jú, þá notuðum við heimasíðu sem heitir Khan Academy og byrjaði sem stærðfræðikennsla en nú er allt mögulegt kennt. Þar voru þeir búnir að útbúa námið þannig að þú gast byrjað að læra einn plús einn en síðan farið alla leið í flóknu stærðfræðihlutina og þér var hjálpað að passa upp á það að þú næðir alltaf grunnreglunum. Þetta eru allt öðruvísi námsgögn heldur en þau námsgögn sem við hugsum oft um. Þarna var búið að blanda saman vídeóum og prófum og allt var þetta gert í sjálfsnámi hjá börnunum. Það mætti t.d. setja pening í að þýða þessi námsgögn yfir á íslensku. Þau hafa þegar verið þýdd á tugi mála og þetta er aðgengilegt á netinu. Við þurfum að vera svolítið opin fyrir því að hugsa að það á ekki bara að búa til námsgögn eins og við sem sitjum hér á þingi þekktum í okkar tíð heldur líka að horfa á þá þróun sem hefur verið í því hvernig við kennum og hvernig við getum kennt.

Það er einnig ánægjulegt að sjá að hæstv. ráðherra ákvað að gjaldfrjálsu námsgögnin skyldu ná allt upp að 18 ára aldri. Það er nefnilega þannig, þótt við gleymum því oft, að fram að 18 ára aldri eru þau skilgreind sem börn. Að sjálfsögðu skapar þetta eitthvert vesen eins og t.d. það að hluti af þessu fellur undir framhaldsskólana, hluti af þessu undir grunnskólana, grunnskólarnir heyra undir sveitarfélögin, framhaldsskólarnir undir ríkið, það er jafnvel fleiri en einn ráðherra sem þetta fellur undir — en við getum lagað það í næstu ríkisstjórn. Það er ýmislegt svona sem flækir þetta.

Ég ætla að vona að hv. allsherjar- og menntamálanefnd fari ekki að breyta þessu niður í 16 ára heldur tryggja að öll börn upp að 18 ára aldri, meðan þau eru enn þá börn, fái þessi námsgögn gjaldfrjálst. Það eru eflaust margar skoðanir á mörgum hlutum í þessu en ég hvet þá hv. þingmenn sem sitja í allsherjar- og menntamálanefnd að skoða þetta með opnum hug og finna leið til þess að vera saman á þessu, vinna saman þvert á flokka, þvert á ríkisstjórn og stjórnarandstöðu, vegna þess að þegar kemur að börnunum okkar þá þurfum við alltaf að standa saman.