námsgögn.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Ég heyrði ekki betur en að efnislega styddi hann þetta frumvarp. Ég gat þó ekki setið á mér að fara í andsvar við hv. þingmann því að mér þóttu ummæli hans sérkennileg hvað varðar það að hæstv. ráðherra sé að leggja þetta fram vegna þess að það sé kosningavetur og það að leggja fram mál um skólamáltíðir, eða vilja koma því í gegn, snúist um það að Vinstri græn fái eitthvað út úr kosningum. Þetta er auðvitað partur af aðgerðum stjórnvalda varðandi kjarasamninga.
Mér finnst eitt að ræða hér málin og skiptast á sjónarmiðum, líkt og hv. þingmenn hafa gert, en er það afstaða hv. þingmanns eða Pírata að á kosningaári haldi ráðherrar úr ríkisstjórninni ekki áfram að vinna að þeim málum sem hafa verið sett fram? Ég veit ekki hvort þetta var sett fram í hálfkæringi en mér er ekki hálfkæringur í huga þegar kemur að því að ríkisstjórn vinni alla leið meðan hún hefur umboð til að vinna samfélaginu til heilla.