námsgögn.
Frú forseti. Ég er ánægð með að heyra að ég og hv. þingmaður virðumst ekki hafa jafn ólíka sýn á þetta og hefði mátt ætla. Það er nú oft þannig með málin sem maður er sérlega fylgjandi að maður hefði viljað sjá þau koma fyrr fram og ég get alveg tekið undir það að ég myndi oft vilja það. En mér fannst jákvætt og gott að heyra hversu almennt vel mér fannst hv. þingmaður taka í þetta mál og koma með ágætisábendingar um það hvernig við höldum áfram að þróa námsgögnin. Ég vona bara að við sjáum stuðning Pírata við þetta mál og eins við önnur mál sem þeir eru pólitískt eða efnislega sammála um en við verðum kannski minna í asnalegu skotum um að eitthvað sé verið að gera bara vegna þess að það séu að koma kosningar. Við erum jú í pólitík til að koma áherslumálum og því sem við brennum fyrir fyrir samfélagið okkar áfram.