námsgögn.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Ég get nú ekki lofað upp í ermina á kollegum mínum í allsherjar- og menntamálanefnd en það er reyndar ekki eins og við getum stoppað málið þar en við getum alla vega lagt góða hluti til. Ég mun alla vega fyrir mitt leyti styðja þetta frumvarp í því að komast í gegnum þingið úr því að ég tel að þetta sé mikilvægt, sérstaklega fyrir fátækari fjölskyldur landsins sem við styðjum allt of lítið við bakið á. Ég vona bara að það verði ekki það miklar slæmar breytingar á þessu frumvarpi í meðförum hv. allsherjar- og menntamálanefndar að mér snúist hugur hvað það varðar. En ég mun alltaf hafa börnin og þá sem minna mega sín í fyrirrúmi þegar kemur að því að taka ákvarðanir um mitt atkvæði.