námsgögn.
Virðulegi forseti. Ég vildi bara þakka fyrir þessa umræðu sem verið hefur hér um þetta mikilvæga lagafrumvarp og koma inn á atriði sem mér finnst standa upp úr. Í fyrsta lagi gjaldfrelsi námsgagna en talsverð umræða hefur verið um það, sérstaklega skilgreiningarnar og hvernig eigi að skilgreina hvað séu námsgögn svo að dæmi sé tekið. Ég hvet nefndina til að skoða það sérstaklega en mig langaði til að fylgja því aðeins betur eftir hér. Ég ítreka aftur það sem ég sagði í minni framsöguræðu um að barnasáttmálinn er nokkuð skýr þegar kemur að því hvað séu námsgögn. Þau er allt það sem barn þarf til þess að öðlast menntun og sækja sér menntun innan skólans. Þegar þú ferð síðan að velta fyrir þér hvernig ætti að skilgreina námsgögnin í orðum þá veltir maður fyrir sér hvort það sé skynsamlegt, vegna þess að þá ertu í raun farinn að takmarka það hvað námsgögn eru, þá ertu farinn að segja hér á Alþingi að námsgögn séu þetta eða hitt, sem getur tekið breytingum inn í framtíðina. Við erum sem dæmi að ræða hér um stafræn námsgögn. Það var enginn að tala um stafræn námsgögn fyrir 20 árum. Þannig að þegar við ræðum námsgögn þá eru þau í mínum huga, eins og barnasáttmálinn kveður á um, allt það sem barn þarf til að sækja sér nám, öll þau verkfæri, tæki og tól sem það þarf í skólanum, alveg sama hvort það er bók, aðgangur að rafrænum námsgögnum, blýantur, hamar, sög eða annað sem þú þarft í verknámi. Það er mín einlæga skoðun og þess vegna er það ekki þrengra skilgreint í frumvarpinu hvað séu námsgögn. Nefndinni er velkomið að skoða það og velta fyrir sér hvort skynsamlegt sé að gera það. En þá kasta ég líka fram þeirri hugmynd að það ætti þá kannski að vera í reglugerð eða einhverju slíku en ekki þrengja það hvað séu námsgögn, vegna þess að það er kjarninn í þessu.
Síðan er það það sem lýtur að aldursmarkinu, 18 árum, og samspilinu þar á milli. Það erum við tilbúin að skoða með nefndinni. Bara svo að ég segi það hér var talað um að það væru tvær leiðir í þessu í tillögu starfshópsins sem vann að undirbúningi þessa frumvarps. Annars vegar var það að gera námsgögn gjaldfrjáls í framhaldsskólanum í heild sinni eða a.m.k. fyrir yngri en 18 ára. Það kann að vera að nefndin myndi vilja skoða það. Við værum reiðubúin til að ræða það við nefndina hvort vilji sé til að fara upp fyrir 18 ára aldurinn en ástæða þess að hann er hafður hér er einmitt sá, eins og hv. þm. Gísli Rafn Ólafsson og fleiri komu inn á, að börn eru börn til 18 ára aldurs. Þannig að við erum bara tilbúin til að skoða það í skilgreiningum og hvort það þurfi að ramma það inn. Ef nefndin vill fara lengra þá er sá sem hér stendur tilbúinn að vinna að því með nefndinni en þá þurfa menn líka að átta sig á því að það kostar meiri fjármuni og þá líklega meiri fjármuni en við erum að gera ráð fyrir á þessu stigi til málsins.
Hitt atriðið sem mig langaði að koma inn á er umræða sem spannst um það hvort opinberir aðilar eða einkaaðilar ættu að stunda útgáfu námsgagna og hv. þm. Gísli Rafn Ólafsson benti á þá staðreynd að hér hefðu menn skipst á skoðunum innan stjórnarmeirihlutans, sem er hollt, sem er jákvætt. Ég vil bara ítreka mína skoðun í þessu. Það sem ég held og kemur kannski engum á óvart vegna þess að hv. þingmenn frá hægri og vinstri deildu hér um hvort skynsamlegt væri að einkaaðilar gerðu þetta eða opinberir aðilar eingöngu í gróðaskyni, er að það sé skynsamlegt að fara blandaða leið í þessu og það er það sem þetta frumvarp gerir ráð fyrir. Ég er þeirrar skoðunar að það sé mjög mikilvægt að um leið og við erum að ræða námsgagnaútgáfu og efla sjóði sem eiga að styðja við einkamarkaðinn í eflingu námsgagnaútgáfu — og ég er sammála hv. þm. Berglindi Ósk Guðmundsdóttur um að við þurfum að rýna framkvæmdina á lögunum í nefndinni og ég hvet nefndina til þess að gera það — þá er mikilvægt að það sé útgáfuáætlun í einhverju formi, hvort sem hún er til þriggja ára, fimm ára eða hvernig sem það er, en að það séu viðmið sem sett eru. Hverjar eru þarfir skólakerfisins? Hvað er það sem við ætlum að leggja áherslu á í samtali og samstarfi við einkaaðila um útgáfu?
Það þurfa líka að vera gæðaviðmið. Hvað eru góð námsgögn? Hvernig ætlum við að meta að það sé verið að framleiða góð námsgögn? Þannig að um leið og við erum að virkja einstaklinginn til námsgagnaútgáfu þá þurfum við að hafa ákveðna ramma, ákveðið utanumhald, og það er það sem við þurfum að ræða. Síðan þurfum við líka að vera tilbúin til þess að ræða hvað við ætlum að gera ef við auglýsum hér að við séum ekki með neina opinbera námsgagnaútgáfu og allt í einu er áhuginn fyrst og fremst á að framleiða námsgögn í ákveðnu fagi en ekki öðru fagi. Hver á að sjá um það? Það getur verið ofboðslega spennandi og allir vilja framleiða námsgögn í íslensku en kannski vill enginn framleiða námsgögn í sögu eða einhverju öðru. Það þarf að vera þetta samspil á milli þessara aðila og mér finnst við vera að ná því í þessu frumvarpi, með því sem sett er hérna fram.
Ég tek líka undir það sem hefur komið fram hjá bæði hægri og vinstri og öllum þeim sem hafa talað um samvinnu á milli aðila, samvinnu milli opinberra aðila og einkaaðila. Það er lykilatriði. Við eigum að geta náð því líka í frumvarpinu en ég hvet nefndina til þess að velta fyrir sér framkvæmd laganna.
Það sem mér finnst svo ánægjulegt að finna að allir eru sammála um, það er mikilvægi námsgagna og hversu mikilvæg námsgögn eru í heild sinni sem verkfæri til að ná betri árangri í skólastarfinu. Við höfum tilhneigingu til þess þegar við erum að ræða mál að setja þau fram þannig að ef við gerum bara eitthvað eitt atriði þá lagist allt. Námsgögn eru eitt af fjölmörgum atriðum sem verða að vera í lagi og við verðum að efla þau, hafa gæðanámsgögn sem nýtast í skólastarfi og þá bætum við gæði náms eins og bent hefur verið á hérna í umræðunni.
Þá vil ég benda á og ítreka að jafnvel þó að við séum á næsta ári að tvöfalda þróunarsjóð námsgagna og námsgagnasjóð þá gerum við ráð fyrir að því verði að fylgja á næstu árum, til 2030, aukning á hverju ári vegna þess að það sem kannski kristallast í öllu sem við erum að ræða hérna er í hversu mikilli innviðaskuld við erum gagnvart menntakerfinu, m.a. í útgáfu námsgagna. Þó að við tvöföldum upphæðina þá munum við þurfa að auka hana áfram á næstu árum. Við þurfum að standa saman um það hér á Alþingi, í samstarfi við fjárlaganefnd og í fjármálaáætlunum, að geta fylgt þessari aukningu áfram eftir á næstu árum. Ég er mjög stoltur af því að vera að leggja til tvöföldun á henni á næsta ári en það þarf að spýta betur í þar og við þurfum að fylgja því fastar eftir á næstu árum vegna þess að námsgögn eru eitthvað það mikilvægasta sem við erum með, efling þeirra, til að ná betri árangri í menntakerfinu og tryggja farsælli framtíð þeirra barna sem eru að ganga í gegnum íslenskt skólakerfi.