155. löggjafarþing — 8. fundur,  19. sept. 2024.

námsgögn.

222. mál
[12:57]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans ræðu hér og fyrir að koma með þetta frumvarp. Það er ýmislegt sem hefur vakið undrun mína engu að síður. Í fyrsta lagi hvernig hæstv. ráðherra vísaði í barnasáttmálann sem við löggiltum 2013 og samt sem áður á að fresta gildistöku þessa frumvarps til ársins 2029. Í öðru lagi er verið að tala um tvöföldun til námsgagnaútgáfu, sem er náttúrlega mjög áhugavert og dásamlegt og hefði mátt tífalda hana þess vegna, en er þá ekki dálítið mikilvægt að börnin okkar geti lesið sér til gagns? Hvernig erum við í rauninni að forgangsraða í ástandinu sem hefur skapast hér í skólakerfinu gagnvart börnunum okkar?

Ég spyr því hæstv. ráðherra: Eftir hverju er verið að bíða með því að löggilda þetta ekki strax og láta þetta taka gildi? Þurfti að skipa stýrihópa til að draga fram nauðsyn þess sem þarf að gera í menntakerfi þar sem börnunum okkar blæðir og helmingur drengja er með lélegan lesskilning eða nánast ólæs eftir tíu ára skólagöngu? Og líka er staðreyndin sú hversu fátækt íslenskra barna hefur vaxið sem segir okkur um leið að foreldrar þeirra eru í meiri vanda að kaupa námsgögn þó að það sé bara stílabók og penni. Þar tala ég af reynslu. Maður kveið fyrir því hvert einasta haust að fjögur börnin manns þyrftu að fara í skóla og við ættum eftir að kaupa handa þeim þau námsgögn sem krafist var á sama tíma og hér er skólaskylda í landinu. En eftir hverju er hæstv. ráðherra að bíða með að láta þessi lög ekki taka gildi strax og hvers vegna er verið að vísa í barnasáttmálann sem var lögfestur fyrir 11 árum síðan ef það á ekki að gera meira með hann en þetta?