155. löggjafarþing — 8. fundur,  19. sept. 2024.

námsgögn.

222. mál
[13:01]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég verð nú að viðurkenna að ég fékk ekki gott svar. Jú, ég hlustaði á ræðuna og ég hef aldrei áttað mig á öllu þessu samtali við allt og alla sem hæstv. ráðherra virðist oft þurfa að eiga þegar er verið að draga lappirnar í því að gera raunverulega bragarbætur þar sem þarf að gera þær. Ég segi ekkert annað en það að hæstv. ráðherra er í lófa lagið að láta þessi lög taka gildi strax. Hann verður löngu dottinn úr sínum ráðherrastól þegar þetta verður að veruleika. Það hefði nú verið gaman að fá að fylgja því eftir inn í kosningaveturinn, ekki satt? En þegar við erum að tala um námsgögn barnanna okkar og hvernig eigi að taka utan um það og fátækt íslenskra barna þá er alveg greinilegt að það er allt í lagi að börnin sem núna eru í fátækt í skólakerfinu fái að bíða í nokkur ár enn þá eftir að þetta verði að veruleika.

Og hvað lýtur að skólamáltíðum: Frábært og hefði átt að vera jöfnunartæki til þeirra sem eiga erfitt og eru fátæk og hafa átt erfitt með að gefa börnunum sínum að borða en þetta er illa ígrunduð útfærsla því að milljarðamæringar geta líka sloppið algerlega við að greiða fyrir skólamáltíðir sinna barna án þess að vilja það meira að segja. Þau hefðu glöð gert það. Mjög mörg sveitarfélög eru að sligast undan þessari ábyrgð sem var verið að setja á þau, fyrir utan það að núna er farið að reyna að spara í innkaupum í mat. Það mun sýna sig eins og það hefur gerst annars staðar að það mun ekki verða eins mögulegt og það hefur verið áður að gefa börnunum okkar hollt að borða, því miður. Þetta er í rauninni illa ígrundað. Það er allt í lagi að skerða öryrkja og eldra fólk um hverja krónu endalaust en þegar kemur að þessu þá má ekki líta á milljarðamæringana, það á að gefa þeim frítt að borða líka. Þessu mótmælir Flokkur fólksins. Þetta er illa ígrundað og hefði átt að koma því betur frá sér en raun ber vitni, sérstaklega þegar við lítum til þess að mörg sveitarfélög munu og eru að sligast undan þessari ábyrgð.