skattleysi launatekna undir 450.000 kr. og 450.000 kr. lágmark til framfærslu lífeyrisþega.
Virðulegur forseti. Við fjöllum enn og aftur um þingsályktunartillögu Flokks fólksins um skattleysi launatekna undir 450.000 kr. og 450.000 kr. lágmark til framfærslu lífeyrisþega. Það sýnir auðvitað gífurlegan áhuga stjórnarliða að ekki er einn einasti stjórnarliði í salnum. Það segir okkur að það er ekki mikill áhugi á þeim bæ að bæta hag þeirra verst settu. Okkur ber skylda til að sjá til þess að enginn lifi í fátækt, hvað þá sárafátækt. Þar af leiðandi ber okkur líka skylda til að samþykkja 450.000 kr. skatta- og skerðingarlaust og það núna strax. Það er engin ofrausn, þetta er bara lágmarkið fyrir einstaklinga og fjölskyldur og kemur vonandi í veg fyrir að fjöldi þeirra verst settu haldi áfram að standa í biðröðum eftir mat heldur eigi möguleika á að kaupa og velja sinn mat sjálft eins og aðrir. Og það á einnig að eiga fyrir öðrum nauðsynjum sem fjölskyldur og einstaklingar þurfa á að halda til að lifa mannsæmandi lífi. Það getur ekki nokkur maður talið það ofrausn að allir geti farið út í búð og valið þann mat sem þeir vilja handa sér og fjölskyldu sinni og að við getum séð til þess í eitt skipti fyrir öll að ekkert barn þurfi að alast upp í fátækt, hvað þá sárafátækt.
Við skulum ekki gleyma því að Flokkur fólksins er stofnaður númer eitt, tvö og þrjú til að útrýma fátækt barna. Það segir sig sjálft að í okkar gjöfula landi á enginn að þurfa að lifa við fátækt. Það er ákvörðun ríkisstjórnar undanfarinna áratuga að næra þetta fátæktarkerfi og þá einnig að viðhalda þessu ömurlega fátæktarumhverfi hér á landi. Þessi fátæktarstefna með skatta- og skerðingastefnu, sem bítur fastast fjárhagslega þá sem síst skyldi, bítur sérstaklega illa þá sem eiga minnstan rétt í lífeyrissjóðum en þar er stærstur hlutinn konur.
Það er verið að tala um að endurskoða almannatryggingakerfið en við getum ekki farið í þá endurskoðun fyrr en við tökum á grundvallarmannréttindum, þ.e. að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um málefni fatlaðs fólks og viðauka hans. Ástæðan fyrir því að ríkisstjórnin dregur lappirnar við að lögfesta hann hlýtur að vera að um leið og hún hefur lögfest samninginn getur hún ekki brotið á réttindum fatlaðs fólks eins og hún gerir í dag — og við sjáum birtingarmyndina stanslaust í fréttum. Í þokkabót eru lífeyrissjóðsgreiðslur skertar um 38,9% hjá öryrkjum og um 45,5% hjá ellilífeyrisþegum sem er auðvitað alveg með ólíkindum. Staðreyndin er að það eru 110 milljarðar á ári sem ríkissjóður er að spara sér á skerðingum í þessu ömurlega skerðingarkerfi sem þeir eru búnir að byggja upp. Og eru þeir að nýta þetta til að útrýma fátækt, nýta þetta fyrir þá sem virkilega þurfa á því að halda og þá sem þeir taka þessa peninga af? Nei. Það hringja allar viðvörunarbjöllur í huga mér þegar ég heyri ríkisstjórnarflokkana aftur og aftur segja að nú sé tími þessa fólks kominn, að þessi hópur geti ekki beðið lengur, að þessir einstaklingar geti ekki beðið lengur. Það er ekkert annað en innantómt fals. Þau bíða og bíða og bíða enn og munu bíða áfram eftir þessar kosningar líka ef þessi ríkisstjórn fær að halda áfram, sem við vonum ekki.
Hvar eru stjórnarliðar í þessari umræðu, eins og ég benti á áðan? Þeir gætu sýnt fram á að þeir meini eitthvað með því þegar þeir segja um þetta fólk að það geti ekki beðið lengur. En þeir sjást ekki hérna. Þeir ættu eiginlega að koma og taka undir 450.000 kr. lágmarksframfærslu skatta- og skerðingarlaust ef þeir meina eitthvað með því að þeir vilji taka á fátækt og sárafátækt. Það er eitthvað stórkostlega bogið við það að við viljum ekki reikna rétta framfærslu og borga hana. Það er ekkert auðveldara en að reikna nákvæmlega hvað einstaklingur eða fjölskylda þarf til að lifa mannsæmandi lífi. Af hverju er það ekki gert? Vegna þess að ríkisstjórnin vill það ekki. Vonandi, og mjög ólíklega eftir næstu kosningar, verður ekki lengur hangið á þessu ómannúðlega fjárhagslega ofbeldi sem nú er beitt gegn fólki sem hefur það verst í okkar ríka samfélagi og á enga möguleika á að verja sig gegn þessu óréttlæti. Það stjórnar vonandi því að þeir sem hafa verið við völdin undanfarna áratugi verði það ekki áfram. Það er ákvörðun hverrar ríkisstjórnar fyrir sig að segja við ykkur þarna úti, sem þurfið að lifa við þessar aðstæður, að hún ætli engu að breyta. Hvernig getum við breytt þessu kerfi? Hvernig getum við tekið á því og séð til þess í eitt skipti fyrir öll að fólk sé ekki að lifa í fátækt, hvað þá sárafátækt? Jú, með því að koma á og samþykkja þessa þingsályktunartillögu um 450.000 kr. skatta- og skerðingarlaust.
Ég vona heitt og innilega að þessi þingsályktunartillaga verði tekin fyrir og samþykkt. Það væri frábært skref en þó aðeins fyrsta skrefið í því að sýna fram á að við séum að hugsa um þá sem minnst hafa, að við séum ekki eingöngu að hugsa um okkar eigin rass heldur þeirra sem þurfa virkilega á því að halda að við tökum utan um þá og sjáum til þess að enginn muni þurfa að búa við fátækt hér á landi. Það sem er dýrt í þessu samfélagi er að hér skuli vera fólk sem er haldið í svo mikilli fátækt og sárafátækt að það á ekki fyrir mat, lyfjum, fötum, hvað þá öðrum nauðsynjum sem í þeirra augum er hálfgerð lúxusvara. Fólkið á lægstu launum frá Tryggingastofnun ríkisins er langt undir fátæktarmörkum. Það er í sárafátækt og getur á engan hátt framfleytt sér í dag. Það sorglegasta af þessu öllu saman og veigamesta og ljótasta umhverfið er að við erum með hálfgert fátækrahverfi og það eru börn sem eru þar innan um í boði ríkisstjórnarinnar. Hvernig í ósköpunum getum við réttlætt það áratugum saman að hafa börn í þessum aðstæðum? Og að börn þurfi að standa í röðum með foreldrum sínum til þess að bíða eftir að fá gefins mat, það er ríkisstjórninni sannarlega til háborinnar skammar.
Ríkisstjórn eftir ríkisstjórn hefur stórhækkað skatta og skerðingar og nú er farið að skatta og skerða fátækt fólk til sárafátæktar. Hvar eru mannréttindi og jafnrétti þegar við segjum við fólk sem hefur ekki einu sinni efni á að kaupa sér mat að það fái ekkert frá ríkisstjórninni? Ef við erum í þeirri stöðu að meira að segja hjá Tryggingastofnun, sem á að sjá til þess að hægt sé að fara þar í reiknivél og reikna út hvað fólk er með í framfærslu, hver staða hvers og eins er — að það sé hægt að fara þar inn og reiknivélin sé rangt upp sett og rétt tæpar 80.000 kr. verði að 400.000 kr. Og að einhver geti farið þarna inn og reiknað þetta svona rangt og farið með það út í samfélagið og fullyrt að einhver sé með 800.000 kr. útborgað, það gerir mann eiginlega alveg kjaftstopp. Það er enginn vandi ef viðkomandi sér þessa upphæð hjá Tryggingastofnun að fara og finna út hvort þetta sé rétt vegna þess að það er gefið nákvæmlega upp hvað hver og einn bótaflokkur er að gefa af sér, eða gefa eins lítið af sér og hægt er. Það er eiginlega með ólíkindum að það skuli vera hægt að setja þetta þannig upp og koma því frá sér að einhverjir séu að fá 800.000 kr. eftir skatt.
Persónuafsláttur hefur ekki fylgt launaþróun. Persónuafsláttur ætti að vera margfalt hærri. Persónuafsláttur ætti að detta út og ætti ekki að fylgja þeim sem eru á háum launum en því miður hefur þessi ríkisstjórn og ríkisstjórnir undanfarinna ára ekki snert hann. Við vitum að kjaragliðnun í almannatryggingakerfinu hófst eftir hrunið. Þá voru settar inn 10% skerðingar á almennan lífeyri og því var lofað að það yrði svo sannarlega fyrsta verk þeirrar ríkisstjórnar, sem var vinstri stjórn Vinstri grænna og Samfylkingar, að hækka þennan hóp upp. Það var ekki gert. Þarna hófst kjaragliðnun. Það skiptir engu máli hvað þessir fjórflokkar sem hafa verið völd undanfarin ár segja eða lofa, þeir standa aldrei við það. Eina leiðin, sem verður vonandi í næstu kosningum, er að þeir hafi ekki þessi völd og aðrir komist til valda sem eru tilbúnir til að tryggja það að 450.000 kr. skatta-og skerðingarlaust verði lágmarksframfærsla.