155. löggjafarþing — 8. fundur,  19. sept. 2024.

stéttarfélög og vinnudeilur.

24. mál
[14:31]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég kem hér upp sem einn meðflutningsmanna þessa góða frumvarps hv. þm. Teits Björns Einarssonar og til að fagna því að lagt sé til að heimildir ríkissáttasemjara verði efldar eins og þar er lagt til. Með því er auðvitað verið að reyna að færa íslenska löggjöf til samræmis við það sem tíðkast í nágrannalöndum okkar og virðist vera eilíft viðfangsefni hér á virðulegu Alþingi. Það er auðvitað staðreynd að þessi löggjöf, lög um stéttarfélög og vinnudeilur, frá 1938, stenst ekki mannréttindaviðmið nútímans um skoðanafrelsi. Í raun felur þessi löggjöf í sér skylduaðild að stéttarfélögum. Þeir sem kjósa ekki aðild eru auðvitað illa settir og í raun útilokaðir frá starfsmöguleikum og slíkt hefur verið margdæmt hjá Mannréttindadómstól Evrópu.

Varðandi þetta mál þá vona ég að það fái framgang hér í þinginu og stuðli þannig að því að þessu leyti að tryggja betur heilbrigði íslensks vinnumarkaðar.