155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

varamaður tekur þingsæti.

[13:31]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Flokks fólksins um að Eyjólfur Ármannsson, 6. þm. Norðvesturkjördæmis, muni ekki geta sinnt þingstörfum á næstunni. Í gær, mánudaginn 23. september, tók því sæti á Alþingi Sigurjón Þórðarson, 4. varamaður á lista flokksins í kjördæminu en varaþingmenn ofar á lista hafa boðað forföll.

Sigurjón Þórðarson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.