mannabreytingar í nefndum.
Forseti vill tilkynna að honum hefur borist erindi frá þingflokki Framsóknarflokksins um mannaskipti í nefndum, sbr. 1. mgr. 16. gr. þingskapa, á þá leið að, Halla Signý Kristjánsdóttir taki sæti sem aðalmaður í velferðarnefnd í stað Lilju Rannveigar Sigurgeirsdóttur og Lilja Rannveig taki sæti Höllu Signýjar í sem varamaður í sömu nefnd. Þá taki Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir sæti sem aðalmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í stað Höllu Signýjar Kristjánsdóttur.
Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.