155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

niðurgreiðsla sálfræðiþjónustu.

[13:36]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegi forseti. Í júlímánuði 2020 tóku gildi lög sem við hæstv. ráðherra studdum bæði með atkvæðum okkar en þau færðu aðgengi að sálfræðingum undir Sjúkratryggingar Íslands. Markmiðið með lögunum var að fólk á öllum aldri gæti sótt sér sálfræðiþjónustu sem væri niðurgreidd af hinu opinbera. Við Píratar studdum þetta frumvarp félaga okkar í Viðreisn heils hugar enda vitum við að geðheilbrigði er grundvallarforsenda fyrir almennu heilbrigði og að tími er löngu kominn til að útrýma þeirri mismunun sem hefur gilt gagnvart geðheilbrigðisþjónustu í heilbrigðiskerfinu. Hæstv. ráðherra greiddi málinu atkvæði sitt eins og áður sagði en ekki leið á löngu þar til forveri hans í starfi, þáverandi fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson, sagði eitthvað á þá leið að það væri gott og gilt að líta svo á að geðheilbrigðisþjónusta ætti heima í heilbrigðiskerfinu en það stæði nú samt ekki til að fjármagna niðurgreidda sálfræðiþjónustu. Orðrétt sagði ráðherrann þáverandi um fjármögnun frumvarpsins, með leyfi forseta:

„Ég held að þetta hafi verið tímabært skref en vandinn okkar í augnablikinu er sá að við mættum eiga fleiri krónur í kassanum.“

Síðan eru liðin fjögur ár og vanlíðan og geðrænn vandi hafi aukist. Ofbeldi í samfélaginu er orðið mjög áberandi og ríkisstjórnin tilkynnir um að hún ætli að eyða um 180 milljónum á ári næstu tvö árin til að bregðast við auknu ofbeldi ungmenna og um 100 milljónum í að efla geðheilbrigðisþjónustu í heilsugæslunni. Enn bólar ekkert á því að fjármagna til fulls niðurgreiðslu á sálfræðiþjónustu sem við vitum að getur skilað okkur umfangsmiklum ávinningi í geðheilbrigði þjóðarinnar og sér í lagi ungs fólks.

Spurning mín til hæstv. ráðherra er tvíþætt. Í fyrsta lagi: Sér hann eftir því að hafa ekki tryggt nægilegt fjármagn í niðurgreiðslu á sálfræðiþjónustu fyrir fjórum árum síðan? Í öðru lagi: Nú þegar hæstv. ráðherra hefur tekið við fjármálaráðuneytinu og flokkur hans heldur einnig á heilbrigðisráðuneytinu mun hann tryggja það fyrir kosningar að sálfræðiþjónusta verði sannarlega niðurgreidd? Ég fæ ekki séð að fjárlög hæstv. ráðherra geri ráð fyrir því en batnandi mönnum er jú best að lifa.