155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

niðurgreiðsla sálfræðiþjónustu.

[13:38]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Eins og hv. þingmaður fór ágætlega yfir þá held ég að sé nokkuð skýr vilji hjá löggjafanum annars vegar til að búa til umgjörð sem tryggir það að við getum bætt okkur á þessu sviði, sem og fjárveitingavald þingsins sem hefur sett fjármuni í þetta. Ég held að það séu komnar um 250 milljónir, sem áður voru 100, í þennan lið. Það hafa staðið yfir viðræður, eftir því sem mér skilst, við Sjúkratryggingar. Þeim er ekki lokið, m.a. vegna þess að á hlið sálfræðinganna, sjálfstætt starfandi sálfræðinga, er mikið að gera og eins og við vitum hefur frekar verið skortur á sálfræðingum til að ganga í öll þau störf sem þyrfti ef við ætluðum að uppfylla allar þær óskir, kröfur, væntingar sem við höfum til að geta bætt þessa þjónustu.

Það er rétt hjá hv. þingmanni að við erum að skoða það að setja viðbótarfjármuni í að takast á við þá ömurlegu staðreynd að ofbeldi hefur vaxið meðal barna og unglinga með sérstökum hætti. Og ef það er alltaf verið að leita til sama fólksins sem er takmarkaður fjöldi af þá náttúrlega ráðum við ekki við það. En ég held að það sé einbeittur vilji ríkisvaldsins til að klára slíka samninga ef sú staða kemur upp að það sé hægt, eins og við höfum gert við svo fjölmargar aðrar stéttir eins og sjúkraþjálfara og sérgreinalækna og fleiri aðila sem áður voru ekki með samninga. Þetta er bara eitt af þeim verkefnum sem ég veit að Sjúkratryggingar eru að vinna að. Vilji okkar er, held ég, alveg skýr til þess.