niðurgreiðsla sálfræðiþjónustu.
Virðulegi forseti. Ég fékk nú ekki svör við spurningum mínum til hæstv. ráðherra um þau, en þær voru tvíþættar. Annars vegar hvort ráðherrann sæi eftir því að hafa ekki tryggt nægjanlegt fjármagn árið 2020 þegar lögin voru samþykkt. Þetta er ekki bara spurning um vilja löggjafans, þetta er spurning um lögin í landinu. Þessi endalausa vanvirðing við ákvarðanir Alþingis með því að neita að fjármagna þær er orðin mjög þreytt. Hæstv. ráðherra talar hér um að það sé svo mikið að gera hjá sálfræðingum, en, virðulegi forseti, það er nú þannig að það er búið að gera samkomulag við 20 af 1.000 starfandi sálfræðingum í landinu. Ríkisstjórnin hlýtur að geta gert betur en að benda á að þessir 20 sálfræðingar séu svo hrikalega uppteknir. Ég er að spyrja hæstv. ráðherra tveggja spurninga. Sér hann eftir því að hafa virt vilja löggjafans að vettugi? Ætlar hann að gera betur heldur en forveri sinn sem sagði eftir samþykkt laganna að það stæði ekki til að fjármagna ákvörðun Alþingis? (Forseti hringir.) Mun hann tryggja niðurgreiðslu á sálfræðiþjónustu fyrir næstu kosningar?