niðurgreiðsla sálfræðiþjónustu.
Virðulegur forseti. Ég held að það hafi nú verið mjög skýrt í svari mínu áðan að ég held að við séum á réttri leið. Fjármagnið hefur vaxið. Viljinn til að semja er fyrir hendi. Það er að fjölga inn á samninginn, þetta er sem sagt opinn rammasamningur. Það er ekki nóg að hafa eingöngu fjármuni ef ekki er til fólk og ég veit að hv. þingmaður hefur skilning á því. Sálfræðingarnir voru ósáttir í upphafi, vildu meira samráð og það hafa verið fundir bæði í heilbrigðisráðuneytinu, er ég upplýstur um, sem og hjá Sjúkratryggingum varðandi þetta. Þannig að ég er sannfærður um, hv. þingmaður, þá sýn sem þingið hefur og við öll, að við höldum áfram að bæta þessa þjónustu og kannski ekki síst að beina þeim fjármunum og þeim krafti sem við höfum meira í átt að börnum og unglingum. Ég veit að til þess er vilji í heilbrigðisráðuneytinu.