aðgerðir stjórnvalda í geðheilbrigðismálum.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, 7. þm. Suðvest., að vekja einmitt athygli á þessu, einu stærsta samfélagsmáli nútímans að mínu mati sem er andleg líðan fólks, ekki síst unga fólksins. Þetta er mál sem við í Viðreisn settum fram með þingmönnum úr öllum flokkum og það var samþykkt fyrir fjórum árum samhljóða hér í þingsal. Ég velti því fyrir mér, eftir að hafa hlustað á hæstv. fjármálaráðherra, af hverju ríkisstjórnarflokkarnir eru að samþykkja mál ef þeir treysta sér síðan ekki til þess að forgangsraða í þágu andlegrar líðanar. Var ekkert verið að meina það þegar hér var sagt: Við ætlum að gera andlegri líðan jafn hátt undir höfði og líkamlegri líðan, að við útrýmum svolítið fordómum í samfélaginu og auðveldum fólki, ekki síst ungu fólki og tekjulágu, greiðari aðgang að sálfræðiþjónustu? Þetta er ekki eina lausnin á geðheilbrigðismálum landsmanna. En þetta er mál sem allt þingið tók undir og samþykkti. Mér heyrist alla vega að fyrstu skrefin hafi ekki verið tekin af því að hugsanlega hafi verið andstaða þáverandi heilbrigðisráðherra í garð sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólks, að gamlir fordómar í garð sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólks hafi leitt til þess að það hafi verið tregða til þess að fara í þetta. Ég bara spyr. Fjögur ár síðan og ekki hefur þokast mikið áfram. Ég spyr af því að við vitum það og það á nú að fara að tikka inn hjá fjármálaráðherra að hver einasta króna sem er sett í forvarnir, andlega líðan, skilar sér tíföld til baka.
Ég spyr: Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera raunverulega til þess að senda þessi skilaboð út í samfélagið? Já, við heyrum í ykkur, við ætlum að auka aðgengið. Það hefur ekki verið nóg að gert (Forseti hringir.) og við ætlum að auka forvarnir því þær skila sér margfalt til baka, m.a. með því að (Forseti hringir.) ýta undir betri andlega líðan fólksins okkar í landinu, ekki síst unga fólksins sem þarf núna á því að halda.