aðgerðir stjórnvalda í geðheilbrigðismálum.
Virðulegur forseti. Ég hef svo sem sagt þetta áður og ætla að láta það vaða einu sinni enn: Það skiptir ekki öllu máli hér í málefnalegri umræðu að við þyljum bara upp úr okkur einhverjar staðhæfingar sem síðan standast ekki. Staðreyndin er auðvitað sú að þessi ríkisstjórn hefur á fjölmörgum sviðum verið að vinna í því að bæta aðgengi að sálfræðingum, hvort sem er í skólum, hjá heilsugæslu, inn í fangelsum eða úti um allt samfélagið. Við höfum verið að vinna að því að framfylgja þessari stefnu sem við samþykktum hér og ég held að hafi verið góð og nauðsynleg og það er mikilvægt að við höldum áfram á þeirri braut. Þau tækifæri eru sannarlega til staðar. Það þarf auðvitað að gerast í takt við þá sérfræðinga sem starfa á sviðinu og þann mannafla sem til er, til þess að við getum unnið að þeim verkefnum sem við teljum vera mikilvægust. Við þurfum líka að forgangsraða þeim eftir mikilvægi og ég nefndi það hér í fyrra andsvari að um þessar mundir, held ég, er mikilvægt að reyna að forgangsraða þeim í þágu barna og ungmenna sérstaklega og takast á við þá staðreynd, sem er ömurleg og ég tek undir með hv. þingmanni, sem er andlegt ástand og upplifun okkar ungmenna, allt of mikill kvíði og þunglyndi gagnvart nútímanum og framtíðinni. Það er bara verkefni sem er miklu flóknara en svo að hægt sé að segja að það eitt og sér að fjölga sálfræðingum væri nóg. Það er verkefni sem allt samfélagið þarf að takast á við og tengist auðvitað þeirri umræðu sem við höfum verið í um vaxandi ofbeldi og hvaða leiðir eru til ráða. Þar er fullt af leiðum sem hið opinbera getur farið en það er heilt samfélag sem þarf að takast á við það verkefni og glíma við það svo við komumst á betri stað. En það er engin spurning um að (Forseti hringir.) vilji ríkisstjórnarinnar stendur til þess að bæta það ástand og það sem er í okkar færum.