aðgerðir í loftslagsmálum og ræktun á lífrænum jarðvegi.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Þetta málefni hefur ekki verið sérstaklega borið undir ráðuneyti matvæla, að mínu viti a.m.k. Ég myndi halda því til haga að ég er ekki sammála því, ef ég hef skilið hv. þingmann rétt, að um sé að ræða skerðingu á landi til lífrænnar ræktunar sem ég er ekki viss um að ég sé alveg sammála um að eigi að gera. Eins og ég segi þekki ég ekki þetta einstaka mál sem hv. þingmaður vísar hér í. Væntanlega er það komið úr umsögn, eins og hér var nefnt, og þá tekur við, eins og við þekkjum, vinna áfram inni í ráðuneyti. Og ef rétt reynist sem þingmaðurinn bendir og bændur séu hugsanlega tiltölulega ósáttir við það sem þar kemur fram þá geri ég ráð fyrir því að eitthvað verði eftir því hlustað. Ég þakka fyrir ábendinguna um þetta mál og mun skoða það.