155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

aðgerðir í loftslagsmálum og ræktun á lífrænum jarðvegi.

[13:54]
Horfa

matvælaráðherra (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég ætla að vona að það sé ekki einhver misskilningur í gangi vegna þess að sannarlega er það þannig að ráðuneytin kynntu þessar loftslagsáætlun saman og ég vona bara að hér sé ekki um neinn misskilning að ræða. Ég er nýbúin að tilkynna og auglýsa aðgerðaáætlun um lífræna framtíð sem m.a. snýr að því að auka lífrænan landbúnað. Hvort þetta er eitthvað annað sem þarna er undir átta ég mig ekki alveg á. Ég játa það bara. Eins og ég sagði við þingmanninn áðan þá mun ég skoða þetta og leiðrétta það ef einhver misskilningur er í gangi. Ég bara játa það að ég kannast alla vega ekki við að það eigi að minnka þetta, nema það sé þá ekki verið að tala um lífrænan landbúnað per se heldur jörðina eða eitthvað sem myndi ekki henta til að stunda lífrænan landbúnað. En ég skoða þetta.