lífeyrisréttindi hjá lífeyrissjóðum með aukna örorkubyrði.
Herra forseti. Hv. þm. Kristrún Frostadóttir átti orðastað við hæstv. fjármálaráðherra hér á dögunum. Hún vakti athygli á aðgerð í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem jafngildir í raun sérstakri skerðingu á lífeyrisréttindum fólks sem hefur unnið slítandi störf. Við erum að tala um stéttir sem vinna erfiðisvinnu, lífeyrissjóði þar sem örorkutíðni er mikil og þar sem er algengast að fólk brenni út og glati starfsgetunni. Þarna fann ríkisstjórnin vasana til að seilast ofan í. Þarna á aðhaldið að lenda samkvæmt stefnu þessarar ríkisstjórnar. Þau treysta sér ekki til þess að taka með afgerandi hætti á sóun í ríkisrekstri. Þau treysta sér ekki til að laga skattkerfið okkar þannig að ríkasta 1 prósentið á Íslandi greiði þótt ekki væri nema nokkurn veginn sama hlutfall í skatt og almennt launafólk. Nei, það má ekki, en það hlýtur að vera hægt, hugsar ríkisstjórnin, að kreista nokkra milljarða út úr lífeyrisþegum sem hafa unnið líkamlega og andlega krefjandi vinnu, fólkinu sem hefur greitt í sjóði eins og Gildi, Stapa, Festu, Lífeyrissjóð Rangæinga og Lífeyrissjóð Vestmannaeyja. Ríkisstjórnarflokkarnir þrír takast á um hitt og þetta en hér er aðgerð sem þau gátu komið sér saman um. Ef jöfnunarframlag ríkisins til lífeyrissjóða fellur niður að fullu, eins og ríkisstjórnin leggur til að gerist árið 2026, verða lífeyrisgreiðslur hjá Gildi að meðaltali 30.000 kr. lægri á mánuði en hjá öðrum sjóðum. Finnst hæstv. fjármálaráðherra það réttlát niðurstaða? Getur hæstv. ráðherra horft framan í verkafólk í landinu, horft framan í láglaunafólk og útskýrt hvers vegna það fólk sem hefur fyrst og fremst unnið erfiðisvinnu (Forseti hringir.) eigi að njóta miklu lakari lífeyrisréttinda en annað launafólk?