155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

lífeyrisréttindi hjá lífeyrissjóðum með aukna örorkubyrði.

[14:00]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegi forseti. Það er ótrúlegt að verða vitni að þessu. Þetta er sami hæstv. ráðherra og kom hérna í síðustu viku og kom með í fjárlagafrumvarpi sínu og fullyrðir ranglega að með hækkun á frítekjumarki lífeyristekna sé verið að færa eldri borgurum að jafnaði kjarabót upp á 138.000 kr., nokkuð sem hver sem skilur skerðingarreglur almannatryggingakerfisins veit að er rangt. Þetta er ráðherra sem kann ekki að reikna og hér kemur hann upp og heldur því fram ranglega að allt sem ég hélt fram áðan í ræðustól sé einhvern veginn rangt. Reikningsdæmið hjá hæstv. ráðherra í þessu máli gengur ekkert upp. Þeir lífeyrissjóðir sem hann segist ætla að hlífa fá í dag samtals 66% af þessum jöfnunarframlagi. Hæstv. ráðherra heldur því fram að það sé hægt að lækka framlagið niður í 35% af því sem fyrir var en hlífa um leið þessum sjóðum. Það stendur ekki steinn yfir steini hjá hæstv. ráðherra. Svo kemur hann hérna upp með hroka og lætur eins og hér sé einhver ofboðslega ómálefnaleg umræða á ferð. (Forseti hringir.) Það er ótrúlegt að fylgjast með þessu. Lífeyrisréttindi erfiðisvinnufólks eru nú þegar lakari heldur en annarra hópa. Þannig er það. (Forseti hringir.) Spurningin er: Hvers vegna vill ríkisstjórnin auka þennan mun enn frekar? Það er greinilega stefna ríkisstjórnarinnar. (Forseti hringir.) Það eru svo mörg verkefni, virðulegur forseti, sem við þurfum að leysa úr. Getum við ekki bara sammælst um það (Forseti hringir.) að láta þessa sjóði vera og velta ekki aðhaldinu sérstaklega yfir á verkafólk sem hefur unnið slítandi störf um langa ævi með svona aðgerð og fara ekki með kolrangt mál í pontu aftur og aftur?

(Forseti (BÁ): Forseti minnir á að ræðutími í óundirbúnum fyrirspurnum er aðeins ein mínúta þegar ræðumenn taka til máls í síðara skiptið, en ekki ein mínúta og 40 sekúndur.)