155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

lífeyrisréttindi hjá lífeyrissjóðum með aukna örorkubyrði.

[14:02]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég heyrði hér í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra að formaður Samfylkingarinnar sagði að undir hennar stjórn yrði Samfylkingin aldrei sjálfumglöð. Það er af fullkomnu lítillæti sem ég þykist ekki vera bestur í heimi í stærðfræði og það getur vel verið að hv. þingmaður hafi það rétt til máls að bera að honum finnist kerfið fínt, að taka 7,5 eða 8 milljarða og dreifa til lífeyrissjóða sem eiga 8.000 milljarða og eru ekki með aukna örorkubyrði. Mér finnst það ekki gáfulegt. Mér finnst gáfulegt að nota skattfé almennings til að verja þá sjóði sem eru með aukna lífeyrisbyrði (JPJ: 66% …) og tryggja að þeir þurfi ekki að skerða það og nota á sama tíma tækifæri til samtals og samvinnu við lífeyrissjóðina til að finna betra fyrirkomulag, betra fyrir samfélagið, (Forseti hringir.) betra fyrir þá sem þurfa á þessu að halda og skynsamlegra fyrir ríkissjóð til lengri tíma.