strandveiðar og atvinnufrelsi.
Herra forseti. Ég bar hér fyrr upp spurningu. Hún var skýr. Hún var einfaldlega: Var gætt að atvinnufrelsisákvæði stjórnarskrárinnar? Því miður svaraði hæstv. ráðherra því ekki. Hún var frjáls að þessari ákvörðun og ef marka má orð hennar hér úr þessum ræðustóli þann 12. september síðastliðinn þá er hún sammála mér um þessi sjónarmið, að einhverjir almannahagsmunir voru ekki að veði. Þannig að ég skora á hæstv. ráðherra að svara þessari spurningu hvort þessi ákvörðun hafi verið í samræmi við stjórnarskrána. En ég verð nú að segja það, og vil byrja á því að hrósa hæstv. ráðherra, að það verður bara að segjast eins og er að þótt hún lofi litlu þá gerir hún eitthvað á meðan forveri hennar í starfi, sem býður sig nú fram sem formann í Vinstri grænum, lofaði öllu fögru og gerði illt verra.