155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

strandveiðar og atvinnufrelsi.

[14:09]
Horfa

matvælaráðherra (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Eins og ég sagði, og ég taldi mig hafa svarað hv. þingmanni um það hvort gætt hefði verið að atvinnufrelsi í stjórnarskrá: Já, það tel ég vera þegar við veitum aðilum heimild til að veiða úr sameiginlegum auðlindum. Já, þá er það þannig að það er gætt að atvinnufrelsi. Það var engum bannað að stunda sjóinn innan þeirra reglna sem um þetta gilda. Þegar hv. þingmaður heldur því fram að hér sé stjórnarskrárbrot þá er ég því ósammála þannig að við getum (Gripið fram í.) bara haft ágreining um það. En ég held að við eigum frekar að horfa fram á veginn og sjá til þess hvernig við getum gert þetta umhverfi betra. Ég vona það að ef hv. þingmaður ætlar að vera hér eitthvað á þingi að við náum að vinna það saman af því að ég veit að hann er sammála mér í því að við þurfum að rétta aðeins við kompásinn miðað við hvernig hann hefur verið undanfarin ár.