155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

þróun á húsnæðismarkaði og hlutur banka í að lækka verðbólgu.

[14:11]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Hæstv. forseti. Mig langar að ræða efnahagsmál og húsnæðismál við hæstv. ráðherra enda tengist þetta. Verðbólgan er þrálát en sem betur fer á niðurleið. Bankarnir hafa hins vegar verið að hækka vexti sína og mér finnst það vekja upp spurningar um hlutverk þeirra í því að vinna gegn verðbólgu. Það getur ekki bara verið hlutverk stjórnvalda, aðila á vinnumarkaði og heimilanna að vinna í því. Það sem við svo sjáum, m.a. í skýrslu frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, vera að gerast á húsnæðismarkaði er að þeir aðilar sem fyrir eiga íbúð eða íbúðir eru að fjárfesta í miklum mæli en síður þau sem eru að fjárfesta í húsnæði fyrir sig til að búa í. Mér finnst þetta slæm þróun því að í góðu samfélagi er fasteign ekki eitthvað sem gengur bara kaupum og sölum á markaði heldur er hún heimili fólks þar sem það getur fundið fyrir öryggi og planað framtíð sína.

Mig langar að spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hvort hann hafi gefið þessu gaum og hvernig hann sjái fyrir sér að hægt sé að stíga inn í þetta. Kannski fyrst og fremst hvort hann telji þetta, eins og ég, vera eitthvað sem þurfi að horfa sérstaklega til (Forseti hringir.) og svo hvernig við getum komið hlutum í þann farveg að húsnæði sé heimili.