155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

þróun á húsnæðismarkaði og hlutur banka í að lækka verðbólgu.

[14:17]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Það er rétt að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn var með ábendingar í síðustu úttekt sem birtist í sumar og var svona heilt yfir mjög jákvæð í garð þeirrar efnahagsstefnu sem hefur verið framfylgt hér á Íslandi og styður við það sem við höfum verið að segja, að þetta sé nú allt að koma. En það voru ábendingar um að skoða skattlagningu og fjárhagslega skattastyrki sem varða þá annað heimili eða fleiri heimili fólks, eitthvað sem við höfum verið að skoða og við þurfum að greina.

Það er líka rétt að nefna það hér að menningar- og viðskiptaráðherra var með frumvarp á síðasta þingi um takmörkun á að félög í atvinnurekstri geti verið að kaupa upp íbúðir í þeim tilgangi að setja inn á Airbnb eða inn á leigumarkaðinn með þeim hætti. Það er eitthvað sem mun skila sér smátt og smátt en ekki aftur í tímann. Þannig að ég held að við séum með augun á þessum bolta. En það er mikilvægt að greina líka hvað er að gerast nákvæmlega á markaðnum áður en við grípum til aðgerða.