fundarstjórn forseta og fyrirspurnir til ráðherra .
Herra forseti. Ég er ánægð með fundarstjórn forseta og hvernig hann hefur tæklað þetta mál. Mér finnst hins vegar athyglisvert að jafn reyndur þingmaður og hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skuli með svona skýrum hætti spyrja hæstv. ráðherra en gera annan ráðherra að svona miklu lykilatriði í fyrirspurninni, því að það er ekki það sama og að ræða stefnu ríkisstjórnar. Það er allt annars konar. Mér finnst ekki sæmandi að gera það í umræðu þar sem viðkomandi þingmaður eða ráðherra getur ekki komið inn í samtalið nema með því annaðhvort að bera af sér sakir eða undir fundarstjórn forseta. (Forseti hringir.) Það er einfaldlega hægt að beina fyrirspurn til þess sem mann langar að fá svarið hjá.