fundarstjórn forseta og fyrirspurnir til ráðherra .
Herra forseti. Forseta er auðvitað vandi á höndum þegar hann þarf að temja hv. þingmenn í óundirbúnum fyrirspurnum, t.d. þegar kemur að fjármálum hins opinbera. Á síðasta ári höfum við haft þrjá ráðherra í því sæti. Hér var til umræðu fjármögnun á sálfræðiþjónustu. Árið 2020 voru aðrir ráðherrar í ríkisstjórn, fóru síðan í gegnum kosningar og endurnýjuðu stjórnarsamstarfið. Allan þann tíma, öll þau fjögur ár hafa allir ráðherrar þeirrar ríkisstjórnar staðið gegn samþykkt Alþingis á lögum um niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu. Við gætum spurt hvert einasta þeirra. Við gætum spurt hvern einasta þingmann hvers vegna í ósköpunum þau studdu þetta frumvarp árið 2020 en hafa síðan svikið almenning um þá geðheilbrigðisþjónustu sem Alþingi var sammála um að veita.
Að ráðherra sé eitthvað sár yfir því að hafa ekki verið dregin upp í fyrirspurn um þetta — (Forseti hringir.) ja, kannski vill fyrrverandi heilbrigðisráðherra eiga hér orðastað við hv. þingmenn um sína arfleifð í þessu máli (Forseti hringir.) eins og aðrir þingmenn stjórnarflokkanna mættu gjarnan gera. En ef þau fjármagna þetta ekki (Forseti hringir.) fyrir kosningar verður sá reikningsskapur gerður fyrir almenningi sem þetta fólk sveik.