fundarstjórn forseta og fyrirspurnir til ráðherra .
Virðulegi forseti. Reynsla mín hér á þingi í yfir 20 ár segir mér að svör ráðherra á síðustu sjö árum hafi aldrei verið jafn slæm og nú. Þannig er það bara. Við erum ekki að fá svör frá ráðherrum. Og hvað geri ég? Ég er að rekja sögu málsins. Ég er að rekja söguna á máli sem allur þingheimur samþykkti hér samhljóða. Og er nema von að ég segi að við megum ekki taka gagnrýni og pólitík út úr öllu hér út af einhverjum formalisma þegar við erum að draga fram hver er hin raunverulega staða og saga málsins? Það er bara eðlilegt. En við fáum engin svör og það er mér umhugsunarefni einmitt eftir meira en 20 ára reynslu, svipað og hæstv. forseti, að við í stjórnarandstöðu erum ekki að fá nein svör. Meira að segja hæstv. fjármálaráðherra sagði við mig áðan að ég væri ekki að fara með réttar tölur. Ég var bara vísa í tölur frá umboðsmanni Alþingis og umboðsmanni barna (Forseti hringir.) og þær tölur eru ekki réttar, tölur um biðlista barna. (Forseti hringir.) Börnum á biðlistum fjölgar, biðlistar barna lengjast. En ég er bara að fara með fleipur af því að umboðsmaður barna (Forseti hringir.) segir þetta: Hvers konar vitleysa er þetta? Það er hlutverk okkar (Forseti hringir.) í stjórnarandstöðunni að halda ráðherrum við efnið ef forseti ætlar ekki að gera það.