155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

fundarstjórn forseta og fyrirspurnir til ráðherra .

[14:30]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti getur ekki skrifað þetta út með skýrum hætti þannig að eigi við í öllum tilvikum. Hins vegar er staðan sú í óundirbúnum fyrirspurnum að fyrirspurnum er beint til tiltekins ráðherra um tiltekin mál sem tilheyra hans málefnasviði og þingmenn verða að gæta þess eða reyna að gæta þess að víkja ekki með þeim hætti orðum að öðrum ráðherrum að það kalli á andsvör af þeirra hálfu í umræðu þar sem þeir eiga þess ekki kost að taka til máls. Þegar allir eiga þess kost að taka til máls eins og í umræðum um lagafrumvörp eða þingsályktunartillögur eða öðrum slíkum umræðum þá kann að gegna öðru máli, en í óundirbúnum fyrirspurnum þar sem umræðan er fyrir fram mjög samanþjöppuð og ekki hægt að bregðast við með sama hætti og í almennri umræðu þá verð ég að biðja hv. þingmenn að hafa þetta í huga. Svo verður forseti á hverjum tíma að meta það hvort farið er yfir strikið eða ekki.