155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

fundarstjórn forseta og fyrirspurnir til ráðherra .

[14:32]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Ég veit að það er ekki til einhver reglubók um þessi fyrirmæli hæstv. forseta eða hans skoðanir á því hvað megi og megi ekki segja í óundirbúnum fyrirspurnatíma en mér finnst mikilvægt að forseti tali skýrar um hvaða mörk hann er að setja hér. Auðvitað eru fjöldamörg dæmi um ráðherra sem myndu vilja bregðast við óundirbúnum fyrirspurnum þingmanna, sem eru ekki þeir sem fá fyrirspurnina. Tökum sem dæmi að það er mjög algengt að ráðherrar séu spurðir hvað þeim finnist um eitthvað sem einhver annar ráðherra gerir. Þetta er bara mjög algeng tegund af fyrirspurnum. Ég man eftir að hafa spurt hæstv. fyrrverandi forsætisráðherra, Katrínu Jakobsdóttur, þó nokkuð oft um hvað henni fyndist um hvað hæstv. þáverandi fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson, hafi verið að gera, svona oftast, og ég man ekki til þess að hafa verið áminnt þá. Mér fannst orð forseta gefa til kynna að við mættum ekki lengur notast við þannig aðferðir og mér finnst bara mjög skýrt (Forseti hringir.) að fá þetta fram svo að við getum átt almennilega umræðu um fundarstjórn forseta á réttum forsendum.