155. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2024.

Húsnæðisliðurinn í vísitölu neysluverðs.

[14:34]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Herra forseti. Hvers vegna tökum við ekki húsnæðisliðinn út úr mælingum vísitölunnar, öllu samfélaginu til hagsbóta? Hvers vegna sláum við ekki á þenslu? Hvers vegna er verðbólgan ekki 3,6% í dag, eins og viðurkennt hefur verið af ýmsum hæstv. ráðherrum að væri raunin ef húsnæðisliðurinn væri ekki inni í vísitölunni? Mig langar að vísa t.d. í orð hæstv. fjármálaráðherra sem hann lét falla hér og höfð voru eftir honum á Vísi fyrir tæpum tveimur og hálfu ári síðan þar sem hann taldi það standa upp á Hagstofuna að kippa því í liðinn og hafði einmitt oft bent á að taka ætti markaðsverð húsnæðis úr vísitölu neysluverðs. Þetta er hjá Hagstofunni, tjáði hæstv. ráðherra á þeim tíma og sagði að hún stjórnaði þessu. Með leyfi forseta, þá sagði hann orðrétt: „Og af hverju er ekki löngu búið að þessu?“

Að þessu spurði Sigurður Ingi Jóhannsson, hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra. Er furða þó að maður spyrji sig? Þetta var fyrir tveimur og hálfu ári síðan. Nú heyrði ég hæstv. ráðherra tala um það að hér væri mjög jákvæð efnahagsstjórn, jákvæð efnahagsstjórn með 9,25% stýrivexti, búið að halda upp á eins árs afmæli þeirra, með slíka okurvexti að ungir einstaklingar sem hafa verið að reyna að koma sér þaki yfir höfuðið sjá enga aðra leið en að losa sig við húsnæði sitt aftur og eru að flytja heim til pabba og mömmu.

Mig langar líka í þessu samhengi að vísa til stefnuræðu hæstv. forsætisráðherra þann 11. september síðastliðinn þar sem hann sagði orðrétt, með leyfi forseta:

„Nú mælist verðbólga 6%, en höfum í huga að án húsnæðisliðarins er hún um 3,6%.“

Einnig hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, segir:

„Þess vegna erum við að sjálfsögðu að gera allt sem við getum og leggjum auðvitað allt undir til þess að verðbólga og vextir lækki. Við verðum að ná þessu niður og til þess að það gerist þá verðum við að líta á það hvernig vísitala neysluverðs er samsett. Þegar við tökum út húsnæðisliðinn er hún 3,6% …“

Þannig að þetta er staðreynd. Nú fáum við skýrslu frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Ég ætla ekki að fara mikið í tölur enda er ekki tími til þess, en nýjustu tölur komu nú bara fram í hádegisfréttunum og það er samdráttur í byggingu húsnæðis um 16,8% í september þetta ár frá árinu í fyrra, á sama tíma og hér er sönglað daginn út og inn að aldrei hafi verið byggt meira. Það er stórkostlegur samdráttur. Síðan hefur einnig komið fram í skýrslu um framtíð íslenskrar peningastefnu frá árinu 2015 að Seðlabankinn mun náttúrlega halda áfram að miða við sitt verðbólgumarkmið sem er 2,5%. Í rauninni var seðlabankastjóri líka á þessum tíma að ýja að því að það þyrfti að skoða verulega húsnæðisliðinn. Síðan kemur greining Íslandsbanka núna nýlega þar sem hann spáði því að íbúðaverð muni hækka um 10,7% á þessu ári, hækka um 10,7%, um 7% árið 2025 og 6,1% árið 2026 í þessari frábæru jákvæðu efnahagsstjórnun. Greining Íslandsbanka spáir því að verðbólgan sem mælist nú 6% verði 5,1% í lok árs og að hún mun hugsanlega fara undir 4% á næsta ári. Það er í rauninni stór spurning hvernig stendur á því þegar vel er vitað og kemur einnig fram, herra forseti, að um 700 færri íbúðir en í dag munu koma á markaðinn innan tveggja ára ef marka má nýja skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Ég velti fyrir mér og spyr hæstv. ráðherra: Hvers vegna er húsnæðisliðurinn ekki tekinn út úr vísitölunni? Eftir hverju er verið að bíða? Er það virkilega svo að við viljum raunverulega horfa á þessa fjármagnsflutninga frá heimilum og skuldsettum litlum og meðalstórum fyrirtækjum beinustu leið í bankana og fjármálastofnanir? Er það virkilega svo? Það er ekki Hagstofan sem ræður því hvort húsnæðisliðurinn er hér inni eða ekki, heldur er það Alþingi Íslendinga sem tekur ákvörðun um það.